Menning

Pabbinn_2

Pabbinn í Sindrabæ - 31.08.2007 Menning

Í kvöld verður leikverkið Pabbinn sýnt í Sindrabæ sem er einleikur eða „one-man-show” þar sem Bjarni Haukur bregður sér í ýmis líki og veltir því fyrir sér hvað það er að vera pabbi. Pabbinn fjallar á gamansaman hátt um hvað það er að vera pabbi í nútímasamfélagi. Þar til fyrir stuttu hefur hlutverk feðra, í uppeldi barna, eiginlega verið talið óþarft. Í hundruð ára trúði fólk því að konur, einfaldlega vegna eðlisávísunar þeirra, væru mun hæfari í að ala upp börn. Þær væru nú með réttu græjurnar og svona. En nútíminn er allt annar: heimurinn breyttist. Heimilin breyttust. Kynjamunurinn minnkaði. Núna er sagt að karlmaður, sem tekur virkan þátt í og axlar ábyrgð á uppeldi barna sinna, hafi gríðarleg áhrif (jákvæð!) á börnin, heimilið og heiminn. En af hverju líður flestum karlmönnum samt eins og þeir þurfi að ljúka BA-námi í „föðurfræðum” í hvert skipti sem þeir halda á börnunum sínum? Pabbatúrinn hófst á Hótel Selfossi á miðvikudagskvöld og var uppselt korteri fyrir sýningu. Rúmlega 300 manns troðfylltu Hótelið og var stemmningin frábær. Lesa meira
 
Gjöf frá Lions

Sumarlestur 2007 á bókasafni Menningarmiðstöðvar - 30.08.2007 Menning

Í sumar varð algjör sprenging í sumarlestrinum hjá börnunum í bænum. Alls skráðu sig 63 börn í átakið þó ekki hafi alveg allir skilað sér. Þau sem tóku þátt lásu alls 606 bækur en til samanburðar má nefna að í fyrra tóku 13 börn þátt og lásu þá 108 bækur. Það er viðurkennd staðreynd að börn sem ná góðum tökum á lestri, standa betur að vígi í námi. Þar að auki er lestur skemmtileg afþreying og viljum við hvetja börnin til að halda lestrinum áfram í vetur. |nl|Á laugardaginn 1.sept ætlum við að hittast á bókasafninu í Nýheimum kl. 2 en þá fá lestrarhestarnir Pésana sína með límmiðunum til eignar ásamt smá glaðningi frá bókasafninu fyrir dugnaðinn. Lesa meira
 
Sólarlag yfir Hornafirði (Mynd: Einar Björn)

Fjölbreytt dagskrá á Hafnarrölti næstu helgi - 27.08.2007 Menning

Laugardaginn 1. september verður Hafnarrölt, þar mun Menningarmiðstöð Hornafjarðar standa fyrir fjölbreyttri dagskrá. Einnig munu verslanir og veitingastaðir á Höfn bjóða upp á margvísleg tilboð. Að sögn Bjargar Erlingsdóttur, forstöðumanns Menningarmiðstöðvar þá er vonast til þess að sem flestir íbúar sveitafélagsins taki þátt í röltinu og njóti þeirrar dagskrár og tilboða sem boðið verður uppá á. Viðburðir á vegum Menningarmiðstöðvar hefjast á laugardeginum kl.13:00 en þá verður Málþing í Nýheimum um bækur Guðjóns Sveinssonar, rithöfund á Breiðdalsvík og stendur það til kl.17. Blásið er til málþingsins í tilefni þess að Guðjón varð sjötugur fyrr á árinu og á um þessar mundir fjörutíu ára höfundarafmæli. Málþingið er haldið á vegum Fræðaseturs Háskóla Íslands á Höfn og Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Málþingið er öllum opið. Lesa meira
 
Money for nothing

Hornfirska skemmtifélagið með Eitís á Hótel Höfn - 24.08.2007 Menning

Eins og undanfarin ár þá verður Hornfirska skemmtifélagið með tónlistardagskrá á Hótel Höfn og að þessu sinni verður það Eitís sem er tónlistardagskrá eftir Felix Bergsson, í leikstjórn Kristínar Gestsdóttur og undir tónlistarstjórn Heiðars Sigurðssonar. Öll vinsælustu lögin frá níunda áratugnum t.d. Draumaprinsinn, Money for nothing, Our house, Careless whisper, Pamela í Dallas, Wake me up befor you go go og mörg fleiri. Sýningar Hornfirska skemmtifélagsins eru margrómaðar og í ár verður ekkert til sparað. Það er því tilvalið fyrir starfsmannafélög, saumaklúbba, vinahópa o.fl . að skella sér í helgarferð til Hornafjarðar í haust. Frumsýningin verður á Hótel Höfn laugardaginn 6. október n.k. 2.sýning 13.október, 3.sýning-20.október, 4.sýning-27.október, og 5.sýning-3.nóvember Verð pr. mann kr. 6.400,- Innifalið er 3ja rétta kvöldverður, sýning og dansleikur með hljómsveitinni KUSK. Sérstakur afsláttur verður fyrir hópa (20 og fleiri). Lesa meira
 
Dívan og Djassmaðurinn

Dívan og Djassmaðurinn í Nýheimum - 24.08.2007 Menning

Sólrún Bragadóttir og Sigurður Flosason verða með tónleika í Nýheimum þriðjudaginn 28. ágúst n.k. kl. 20.00 Dagskráin samanstendur af þekktum íslenskum sönglögum og íslenskum þjóðlögum í útsetningu fyrir sópransöngkonu og saxófón. Óperusöngkona og jazzsaxófónleikari eru líklega með ólíklegustu pörum á sviði listarinnar, fulltrúar tveggja heima sem sjaldan skarast. Söngarfur síðustu alda rennur saman í samfelldan flutning þar sem fyrir kemur spuni af hálfu beggja flytjenda, en einnig tiltölulega hefðbundinn flutningur þar sem saxófónn bregður sér í ólíklegt hlutverk píanósins. Leikrænum tilburðum bregður fyrir, húmorinn er skammt undan og flutningur tónlistarinnar einskorðast ekki við sviðið. Lesa meira
 
Guðjón Sveinsson og frú

Ástin til landsins og hafsins - 23.08.2007 Menning

Málþing um Guðjón Sveinsson rithöfund verður haldið í Nýheimum laugardaginn 1. september n.k. Guðjón Sveinsson er fæddur að Þverhamri í Breiðdal, Suður-Múlasýslu, 25. maí 1937. Auk ritstarfa hefur Guðjón fengist við ýmis störf til sjós og lands í gegnum tíðina og verið virkur í sveitarstjórnarmálum og sat hann í hreppsnefnd Breiðdalshrepps frá 1970 í um 20 ár, þar af í starfi oddvita í 8 ár. Guðjón Sveinsson er mjög afkastamikill rithöfundur en fyrsta bók hans kom út 1967. Hann hefur skrifað fjölmargar bækur fyrir börn og unglinga, allt frá dýrasögum til leynilögreglusagna. Í sex barnabókanna segir Guðjón frá sömu fjölskyldunni, Glaumbæingum, og kom sú fyrsta, Glatt er í Glaumbæ út 1978 og hefur verið endurútgefin tvisvar síðan. Lesa meira
 
Mynd 144

Jazz og ljósmyndasýning - 08.08.2007 Menning

Dorthe Højland og hljómsveit halda hljómleika í Nýheimum laugardaginn 11. ágúst n.k. kl. 20.00. Dorthe Højland hópurinn saman stendur af, Jacop Højland sem leikur á píanó og hljómborð, Andreas Dreier á kontrabassa, Sören Olsen á trommur og Dorthe Højland á sopran- og altsaxofon. Tónlistina samdi Dorthe Højland. Hópurinn hélt síðast tónleika hér á Höfn í Nýheimum í júlí 2005. Lesa meira
 
Bíósýning 31.7.2007

Bíó í stað fjöruferðar! - 01.08.2007 Menning

Í gær, þriðjudaginn 24. júlí, ætluðum við í barnastarfi Menningarmiðstöðvar og Sindra að fara með krakkahópinn okkar í fjöruferð. Vegna veðurs þá þurftum við að blása ferðina af en skelltum í staðin upp bíósýningu í Nýheimum, við góðar undirtektir. Í hléi var síðan boðið uppá popp og svala. Um helgina ætlum við að fara í aukaferð, í tilefni af Landsmótinu, sem við viljum kalla Hafnarrölt. Við ætlum að hittast við Jöklasýninguna klukkan 14:00 og rölta um bæinn okkar og skoða áhugaverða staði og fræðast um þá. Síðan viljum við benda á að það er tilvalið að taka með ykkur gestina sem eru hjá ykkur yfir helgina, unga sem eldri. Aldrei að vita nema við bjóðum uppá einhvern glaðning í lok labbitúrsins, svo þið þurfið ekki að taka með ykkur nesti aðeins klæða ykkur eftir veðri. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica