Menning

Lotta

Dýrin í Hálsaskógi á Hóteltúninu um Verslunarmannahelgina - 30.07.2007 Menning

Leikhópurinn Lotta mun sýna Dýrin í Hálsaskógi eftir Torbjörn Egner á Hóteltúninu nú um Verslunarmannahelgina. Leikhópurinn Lotta sem var stofnaður um haustið 2006 frumsýndi leikritið í maí s.l. í Elliðaárdalnum við miklar og góðar undirtektir. Í uppfærslu Lottu fá dýrin að komast í sitt rétta umhverfi en sýnt er undir berum himni í allt sumar. Leikhópurinn Lotta sýnir alltaf þeim sem vilja sjá og sýnir hópurinn hvort sem sólin leikur við gesti eða rigni. Tónlistarmennirnir sem koma að sýningunni eru þeir hinir sömu og hafa samið og flutt tónlistina í Stundinni Okkar í vetur. Gestir eru hvattir til að klæða sig eftir veðri og mæta með teppi til að sitja á og hlýja sér við. Lesa meira
 
Mæja spæja á bókasafninu

Mæja Spæja á bókasafninu - 27.07.2007 Menning

Bókasafn Menningarmiðstöðvarinnar fylltist af áhugasömum börnum í gær þegar tveir fyrstu þættir “svakamálaleikritsins” um Mæju Spæju voru frumfluttir. Sagan um Mæju Spæju er nýtt verk eftir Herdísi Egilsdóttur sem skrifaði m.a. hina geysivinsælu sögu um Pappírs Pésa. Sigrún Edda Björnsdóttir skrifaði leikgerð upp úr bókinni og leikstýrði Mæju Spæju fyrir útvarpsleikhúsið. Leikritið er í 9 þáttum sem sendir verða út alla virka daga nema föstudaga á Rás 1 klukkan hálf átta og tekur hver þáttur um 15 mínútur. Útsendingar hefjast 1. ágúst. Lesa meira
 
Halaferð 2007

Fjör í Suðursveitinni - 25.07.2007 Menning

Í gær, þriðjudaginn 24. júlí, fórum við í barnastarfi Menningarmiðstöðvar og Sindra með 28 börn í Suðursveitna, nánar tiltekið á Hala. Í þessari ferð voru umsjónamenn Hólmfríður Þrúðmarsdóttir, Þórey Gísladóttir og María Gísladóttir. Síðan var Guðbrandur bílstjórinn okkar á rútunni. Þorbjörg og Fjölnir tóku vel á móti okkur og sögðu okkur fullt af skemmtilegum sögum. Við byrjuðum á því að kíkja á Þórbergssetrið og þar sagði Þorbjörg okkur sögu af álum og Fjölnir sagði okkur frá því þegar hann bjargaði rollum úr svelti ásamt fríðu föruneyti. Eftir það gengum við niður að tjörnum sem eru þarna fyrir neðan bæina að vitja um álagildrur sem Fjölnir lagði deginum áður. Því miður voru nú engir álar komnir í gildruna en tveir litlir silungar og lax sem við slepptum aftur. Lesa meira
 
Lúruveiði 2007

Góð Lúruveiði! - 18.07.2007 Menning

Í gær, þriðjudaginn 17. júlí, fórum við í barnastarfi Menningarmiðstöðvar og Sindra með 42 börn í Lúruveiði. Í þessari ferð voru umsjónamenn Hólmfríður Þrúðmarsdóttir, Þórey Gísladóttir, Björg Erlingsdóttir, Ingibjörg Steinsdóttir og Björn Arnarsson, síðan voru skipstjórarnir okkar Gísli Karl Ágústsson og Elvar Unnsteinsson. Undanfarin ár hefur þessi ferð verið ein af þeim vinsælustu og það var engin undantekning í þetta skiptið. Því miður komust færri að en vildu, þrátt fyrir að við hefðum reddað tveimur auka ferðum með strákunum í Fjöruferðum. Gísli Karl Ágústsson var aðal skipstjórinn okkar og stóð hann sig með stökustu prýði þar sem var mokveiði í flestum túrunum og allir fengu lúru til að taka með heim. Sumir litu á það sem svo að þeir hefðu eignast gæludýr og fregnir herma að baðker Hornfirðinga séu nú full af lúru eftir ferðina. Lesa meira
 
Mæja spæja og Klári tómi

Frumsýning í Nýheimum á fyrsta þætti 'svakamálaleikritsins' Mæju Spæju - 16.07.2007 Menning

Útvarpsleikhús Rásar 1 heldur frumsýningu í Nýheimum á fyrsta þætti 'svakamálaleikritsins' Mæju Spæju eftir Herdísi Egilsdóttur. Fluttur verður fyrsti hluti verksins á samhæfðum tíma á öllum landshornum samstarfi við hátt í 30 bókasöfn um allt land. Krökkum á Hornafirði er boðið í Nýheima miðvikudaginn 25. júlí kl. 14:00. Leiðbeinendur og þeir sem eru í barnastarfi eru eindregið hvattir til að mæta með hópana sína og fá ókeypis skemmtun með því að hlusta á fyrsta hlutann í þessu óborganlega 'svakamálaleikriti', Í aðalhlutverkum eru m.a. spaugstofugrallararnir Pálmi Gestsson og Sigurður Sigurjónsson, og Mæju Spæja er leikin af Ilmi Kristjánsdóttur. Dagurinn er haldinn hátíðlegur með blöðrum og litasamkeppni, þar sem börnum verður boðið að lita myndir af Mæju Spæju og senda inn gegn verðlaunum. Einnig er stefnt að því að sýna tónlistarmyndband sem gert var sérstaklega fyrir leikritið Mæju Spæju, og var leikstýrt af yngsta leikstjóra Íslands sem er einungis 12 ára gamall. Lesa meira
 
Franskir ferdamenn á Suzuki

Skemmtilega útbúinn ferðabíll á tjaldsvæðinu - 14.07.2007 Menning

Af og til koma mjög skemmtilega útbúnir bílar til Hafnar og í gær birtist einn slíkur á tjaldstæðinu hjá Huga Einarssyni, þar var á ferðinni merkilegur og skemmtilega útbúinn ferðabíll sem var tveggja dyra Suzuki Jimny með í eftirdragi stórt hjólhýsi a.m.k. miðað við stærð bílsins. Eins og sjá má á myndunum var vagninn festur bæði aftaní bílinn og á toppi hans. Eigendurnir sem eru franskir eru á hringferð um Ísland ásamt vinum þeirra sem einnig eru á húsbíl. Frakkarnir voru hinir hressustu að spjalla við og harðánægðir með athyglina sem bíll þeirra vakti og vildu endilega fá allar upplýsingar um hvernig væri hægt að komast inn á Hornafjörð.is, þegar heim væri komið til að sína vinum og ættingjum heima hversu verðskuldaða athygli bíll þeirra vakti. Lesa meira
 
Ævintýraferð í Hoffell

Vinsældir barnastarfsins aldrei verið meiri! - 12.07.2007 Menning

Þriðjudaginn síðastliðinn, þann 10. júlí, fórum við í barnastarfi Menningarmiðstöðvar og Sindra með 42 börn í ævintýraferð í Hoffell, eins og glöggir lesendur lásu í síðustu viku þá var slegið aðsóknarmet en það var heldur betur slegið í þessari ferð. Umsjónamenn voru Hólmfríður Þrúðmarsdóttir, Þórey Gísladóttir, Björg Erlingsdóttir, Vífill Karlsson og svo var Þrúðmar Þrúðmarsson (Dúddi) okkur til halds, trausts og fróðleiks. |nl|Haldið var af stað á einni Sindrarútu, Equaliner bílnum hans Dúdda og þremur einkabílum. Fyrst fórum við upp að Hoffellsjökli og gengum svo niður á aurinn, týndum fallega steina og héldum inn í lautina í Geitafelli. Síðan settumst við niður í sólskininu og borðuðum nesti, þegar allir voru saddir og sælir var hópnum skipt í fimm lið og fórum í ratleik þar sem átti að svara spurningum, leysa þrautir og semja ljóð. Lesa meira
 
Dean Ferrell

Tónleikar með kontrabassaleikaranum Dean Ferrell í Nýheimum - 12.07.2007 Menning

Á laugardagskvöld verða tónleikar í Nýheimum þar sem kontrabassaleikarinn Dean Ferrell flytur dagskrá sem hann kallar “the Musical Humors of Captain Tobias Hume”. Þessi dagskrá hefur verið flutt meðal annars í Borgarleikhúsinu, í Hafnarfirði, Akureyri, Seyðisfirði, á írskum dögum á Akranesi, í London, París, San Diego, í Neustadt í Þýskalandi og í Bandraríknunum. Í dagskránni tengir Dean klassíska tónlist við tónlist úr samtíma okkar, þekkt stef og textar eru sett í annað samhengi en við erum vön og gestum lofað eftirminnilegri kvöldstund. Lesa meira
 
Barnastarf MMH fornleifarannsóknir

Metaðsókn frá upphafi! - 05.07.2007 Menning

Í þessari viku, það er síðasta þriðjudag fórum við í barnastarfi Menningarmiðstöðvar og Sindra með 35 börn í fornleifarannsóknir og er það metaðsókn frá upphafi. Að þessu sinni voru umsjónamenn Hólmfríður Þrúðmarsdóttir, Þórey Gísladóttir, Björg Erlingsdóttir og Sigurður Hannesson. Héldum við með Sindrarútunum inn á Bergárdal og að fornleifauppgreftrinum í Hólmi þar sem Ármann, nemi í fornleifafræði við Háskóla Íslands, tók vel á móti okkur og fræddi okkur um þeirra störf og sagði okkur frá því sem verið er að rannsaka þarna innfrá. Milli fyrirlestra borðuðum við gómsætt nesti og héldum svo áfram að drekka í okkur fróðleik frá Ármani fornleifafræðing. Að öllu þessu loknu fórum við í nokkra leiki og skemmtum okkur saman áður en haldið var í Sindrarúturnar og heim á leið. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica