Menning

Menning á Humarhátíð

Mikil menning á Humarhátíð - 29.06.2007 Menning

Að vanda verður mikið um menningarviðburði á Humarhátíð og má þar nefna sumarsýningu á verkum Svavars Guðnasonar sem opnar í dag. Á sýningunni verður úrval verka í eigu Sveitarfélagsins Hornafjarðar, sem ekkja Svavars, Ásta Eiríksdóttir hefur fært sveitarfélaginu síðast liðin ár. Sýningin verður á Hafnarbraut 36, neðri hæð (gamla bókasafninu) og verður opin daglega frá kl. 14.00-18.00 til 7. ágúst. Á Graðalofti (á loftinu í Miklagarði) heldur Hlynur Pálmason (sonur Pálma Guðmundssonar og Elínar Magnúsdóttur) ljósmynda- og málverkasýningu. Þetta er fyrsta einkasýning Hlyns þar sem hann sýnir ljósmyndir, olíuverk og önnur verk sem hann hefur unnið að síðustu misseri. Sýningin opnaði í gær og stendur til laugardags 30. júní. Lesa meira
 
Þórbergur Þórðarson

Opið hús í Þórbergssetri - 29.06.2007 Menning

Sunnudaginn 1. júlí á safnadaginn er liðið nákvæmlega eitt ár frá opnun Þórbergsseturs á Hala. Gestkvæmt hefur verið þar síðustu daga og á þessu eina ári sem liðið er síðan setrið var opnað hafa um 6000 gestir skoðað sýningarnar þar. Mun fleiri hafa þó komið við í Þórbergssetri og kynnt sér verkefnið eða notið þar veitinga og spjallað um málefni líðandi stundar.Fjölskyldufólk hefur farið í ratleikina sem liggja um grundir og móa enda veður verið með eindæmum gott síðustu daga. Í tilefni af árs afmæli Þórbergsseturs verður opið hús þar sunnudaginn 1. júlí. Upplestur verður úr verkum Þórbergs í fjósbaðstofunni á Hala kl 14:00, í Bergshúsi kl 15:00 og á Hringbrautinni kl.16:00. Lesa meira
 
Eyðibýlaskoðun 2007

Byrjuðu á að skoða gaumgæfilega vel falið eyðibýli - 27.06.2007 Menning

Það sem af er sumri erum við í barnastarfi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og Sindra búin að fara í þrjár skemmtilegar ferðir, fuglaskoðun, jurtaskoðun og eyðibýlaskoðun. Í gær þriðjudag fórum við með 22 börn í umsjón Hólmfríðar Þrúðmarsdóttur, Sigurðar Hannessonar, Þóreyjar Gísladóttur og Vífils Karlssonar. Farið var á Sindrarútunum og haldið inn í Þórisdal í Lóni. Þar byrjuðum við á að skoða gaumgæfilega vel falið eyðibýli, síðan var farið í leiki og borðað nesti. Kíktum við einnig á vörðu sem við hlóðum í fyrra og bættum aðeins í hana. Á leiðinni að vörðunni rákumst við á tvo litla skógarþrastarunga sem að sumir höfðu áhyggur af að væru munaðarlausir og vildu helst taka að sér, en móðirin var ekki skammt undan. Á heimleiðinni var komið við í fjörunni fyrir neðan Þorgeirsstaði og skoðuðum við okkur um og fleyttum kerlingar í sjónum. Lesa meira
 
Félagsheimilið SIndrabær

Góðir vinir Sindrabæjar. - 21.06.2007 Menning

Í tilefni 110 ára afmælis Hafnar hefur sú hugmynd komið upp að halda uppboð á hverskonar munum sem tengjast félagsheimilinu Sindrabæ með einum eða öðrum hætti. Til að af geti orðið leitum við til ykkar sem ef til vill lumið á einhverju sniðugu sem nýtst gæti í þessum tilgangi og þið væruð fús að gefa. Ef ágóði verður af tiltækinu mun hann renna óskiptur til Sindrabæjar og nýtast til vilhalds á húsinu. Uppboðið fer fram í Sindrabæ á Humarhátíð – nánari tímasetning verður auglýst síðar – vinir Sindrabæjar fylgist með! Lesa meira
 
Enginn datt í lækinn

Farið verður í 10 skemmtilegar ferðir með krakkana í sumar - 16.06.2007 Menning

Barnastarf Menningarmiðstöðvarinnar er hafið og er víst að það verður nóg um að vera hjá krökkunum í sumar. Farið verður í 10 skemmtilegar ferðir en eins og undanfarin ár þá hafa þær verið hver annari skemmtilegri. Þeir krakkar sem ætla í ferðir þurfa að skrá sig annað hvort á Bókasafninu eða í síma 470-8050. Mikilvægt er að klæða sig eftir veðri og hafa með sér nesti. Verðið er óbreytt, eða 500 krónur á barn. Ferðirnar eru á þriðjudögum í sumar og hefjast kl.13:00. Þeir sem ætla í ferðirnar verða að fylgjast með hvaðan þær byrja. Næsta ferð sem er jurtaskoðunarferð verður farin þriðjudaginn 19. júní kl.13:00 og hefst hún við Nýheima. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica