Menning

Hammondhátíð á Djúpavogi

Landsliðið í tónlist á Djúpavogi - 22.05.2007 Menning

Dagana 31. maí – 3. júní verður haldin Hammond hátíð á Djúpavogi. Á hátíðinni munu fjölmargir tónlistarmenn koma fram en hátíðin er haldin til að heiðra og kynna fyrir tónlistaraðdáendum Hammondorgelið sem úrsmiðurinn Hammond töfraði úr huga sínum til þess að geta gert fátækum söfnuðum kleift að syngja við orgelundirleik. |nl|Hugmyndina að hátíðinni og langstærstan heiður af framkvæmd hátíðarinnar á Svavar Sigurðsson. Lesa meira
 
Guðrún Ingólfsdóttir málverkasýning

Guðrún Ingólfsdóttir opnar málverkasýningu - 22.05.2007 Menning

Þann 19. maí opnaði Guðrún Ingólfsdóttir málverkasýningu á Kaffihorninu. Þar sýnir hún 43 akrýl verk. Myndirnar eru allar málaðar á þessu ári og er þema sýningarinnar Vatnajökull og fjöllin í Lóni. AÐ sögn Guðrúnar þá er sýningin hjá henni liður í að safna í möppu fyrir frekara listnám en hún er að hefja nám í Myndlistaskólanum Í Reykjavík næsta vetur og segist hún stefna á meira nám í listgreinum á næstu árum. Lesa meira
 
Scheving gefur

Samkomulag um afhendingu muna til Menningarmiðstöðvar og Jöklaseturs. - 16.05.2007 Menning

Í gær fór fram undirritun á samkomulagi annars vegar milli Sverris Scheving Thorsteinssonar og Lovísu H. Gunnarsdóttur og hins vegar Sveitarfélagsins Hornafjarðar um afhendingu muna úr eigu þeirra Sverris og Lovísu. Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri skrifaði undir samkomulagið fyrir hönd Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Í samkomulaginu felst að starfsmenn Menningarmiðstöðvar muni skrá og flokka þá muni sem Sverrir og Lovísa hyggjast gefa Menningarmiðstöðinni og Jöklasetri. Þeir munir sem um er að ræða eru m.a. landabréfakort, málverk, bækur um jöklaferðir og tengd málefni ásamt ýmsu öðru sem snertir sögu svæðisins og öðru sem hefur víðari skírskotun. Lesa meira
 
Samkór Hornafjarðar

Samkór Hornafjarðar með tónleika í Hafnarkirkju - 14.05.2007 Menning

Samkór Hornafjarðar heldur tónleika í Hafnarkirkju þriðjud. 15. maí. Efnisskráin er mjög fjölbreytt, þar er suður-amerísk sveifla, gospel, franskar drykkjuvísur, ástarsöngur frá Spáni og Messe brève no. 7 eftir franska tónskáldið Gounod. Auk þess flytur kórinn lagasyrpu úr Fiðlaranum á þakinu við undirleik hljómsveitar sem er skipuð þeim Jóhanni Moràvek, Guðlaugu Hestnes, Jónínu Einarsdóttur, Katrínu Birnu Þráinsdóttur og Zophoníasi Torfasyni. Einsöngvarar eru Nanna Halldóra Imsland, Sólveig Sigurðardóttir og Sigurður Kr. Sigurðsson. Lesa meira
 
Kvennakór Hornafjarðar á Vortónleikum 2006

Margt framundan hjá Kvennakór Hornafjarðar - 09.05.2007 Kvennakór Hornafjarðar

Hinir árlegu vortónleikar Kvennakórs Hornafjarðar verða haldnir í Hafnarkirkju þann 20. maí kl 20:00. Efnisskráin er að venju mjög fjölbreytt og er sungið á a.m.k. fimm tungumálum. Nokkrir efnilegir hljóðfæraleikarar munu leggja kórnum lið á tónleikunum. Kórinn mun síðan halda tónleika í Reykjavík nánar tiltekið í Háteigskirkju þann 11. júní kl 20:00. Stjórnandi kórsins er hinn stórsnjalli Svavar Sigurðsson og undirleikari er hin undurfima Jónína Einarsdóttir (Ninna). Daginn eftir eða 12. júní leggja svo kórkonur og makar þeirra af stað í viku ferðalag til Þýskalands þar sem nokkrir tónleikar verða haldnir ásamt því að kynnast menningu Þjóðverja. Það er vel við hæfi að fara í jafn glæsilegt ferðalag sem þetta þar sem Kórinn fagnar 10 ára afmæli sínu á þessu ári. Lesa meira
 
Jón Ólafsson tónlistarmaður, hress að vanda

Jón Ólafsson með tónleika í Nýheimum í næstu viku - 09.05.2007 Menning

Tónlistar- og sjónvarpsmaðurinn Jón Ólafsson gerir víðreist um landið á næstu vikum í tilefni af útkomu nýs geisladisks. Hann hyggst meðal annars spila í Nýheimum, miðvikudaginn 16.maí n.k. Diskurinn heitir Hagamelur og kemur í búðir um miðjan maí. Jón hefur leikinn á Eskifirði og endar 14.júní með tónleikum í Reykjavík. Árið 2004 kom Jón hingað á Hornafjörð og hélt eftirminnilega tónleika í Nýheimum fyrir troðfullu húsi. Vonandi endurtaka Hornfirðingar leikinn og fjölmenna þegar Jón tekur lagið fyrir okkur í Nýheimum, miðvikudaginn 16.maí. Lesa meira
 
Bardukha

Bardukha snýr aftur til Hornafjarðar - 01.05.2007 Menning

Það er hver tónlistarveislan á fætur annarri á Höfn og að þessu sinni er það hljómsveitin Bardukha sem heldur tónleika í Pakkhúsinu annað kvöld (miðvikudagskvöldið 2.maí) Þetta mun vera önnur heimsókn Bardukha til Hornafjarðar en þeir félagar léku með Kvennakór Hornafjarðar fyrir rúmu ári við góðan orðstír. Balzamersveitin Bardukha var stofnuð 2003 og eru meðlimir Steingrímur Guðmundsson sem leikur á slagverk, Ástvaldur Traustason á harmoniku, Hjörleifur Valsson á fiðlu og Birgir Bragason á bassa. Þeir félagar leika eigin hræring af þjóðlagatónlist þar sem blandað er saman balknesku, slavnesku og arabísku tónkryddi. Frá stofnun hefur Bardukha verið iðin við að leika vítt og breitt um landið en einnig hafa þeir margoft komið fram í sjónvarpi og útvarpi. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica