Menning

Kvískerjasjóður

Sex verkefni fengu úthlutað styrk úr Kvískerjasjóði - 24.04.2007 Menning

Kvískerjasjóður var stofnaður árið 2003 af Umhverfisráðuneytinu til heiðurs systkinunum á Kvískerjum fyrir framlag þeirra til öflunar þekkingar og rannsókna á náttúru og sögu Austur Skaftafellssýslu. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að og styrkja rannsóknir á náttúru og menningu í Austur Skaftafellssýslu. Markmiðum skal náð með veitingu rannsóknarstyrkja til stofnana og einstaklinga. Frá stofnun hans hefur verið úthlutað þrisvar sinnum úr sjóðnum til 14 verkefna. Þarna er um fjölbreytt og metnaðarfull verkefni að ræða og ljóst er að þau eru bæði mikilvægt framlag inn í vísindaheiminn en ekki síður munu þau gagnast til þess að efla og styrkja framþróun byggðar í Austur Skaftafellssýslu. Innan tíðar verður opnuð vefsíða Kvískerjasjóðs og þar verður m.a. þessum verkefnum og örðum þeim sem sjóðurinn kemur til með að styrkja á komandi árum gerð skil eftir því sem mögulegt er og í samráði við þá sem verkefnin vinna. Lesa meira
 
Gamlabúð

Stefnumótun í menningar– og safnamálum 2007-2017 - 24.04.2007 Menning

Núverandi stefnumótun í menningar– og safnamálum Hornafjarðar 2000-2010 var samþykkt í menningarmálanefnd 29. október 2000 og staðfest í bæjarstjórn Hornafjarðar 1. mars 2001. Margt hefur breyst á þeim tíma sem liðinn er, starfsemin vaxið og þróast, nýtt húsnæði hefur verið tekið í notkun og ný verkefni litið dagsins ljós. Menningarmálanefnd, aðal– og varamenn og starfsmenn Menningarmiðstöðvar hafa unnið þessa endurskoðun á stefnumótun. Á fyrsta fundi hópsins var lögð fram tillaga að endurskoðaðri stefnumótun. Alls voru þrír fundir haldnir þar sem viðbætur og breytingar frá fyrri stefnumótun voru ræddar, og athugasemdir gerðar. Lesa meira
 
Þórbergssetur

Mikið um dýrðir að Hala í Suðursveit næstu helgi - 18.04.2007 Menning

Næstu helgi þ.e. helgina 20.-22. apríl standa bókmennta- og framsagnarhópur félagsmiðstöðvarinnar Hæðargarði 31 fyrir menningarferð að Hala í Suðursveit ásamt Tungubrjótum félagsmiðstöðvarinnar Dalbrautar 18-20 og bókmenntaklúbb Hana-nú Kópavogi sem starfar á vegum Bókasafns Kópavogs. Þessir hópar hafa verið að lesa og kynna sér verk og ævi Þórbergs Þórðarsonar í vetur. Hluti þessa hóps stendur fyrir opinberri dagskrá um Þórberg Þórðarson að Hala laugardagskvöldið 21. apríl sem hefst kl. 20.30. Dagskránni stýra leikararnir Soffía Jakobsdóttir og Guðný Helgadóttir. Alls taka þátt í ferðinni um 50 manns og ljóst er að það verður mikið um dýrðir að Hala í Suðursveit næstu helgi. Skaftfellingar eru velkomnir að koma í Þórbergssetur á laugardagskvöldið að njóta dagskrárinnar með gestunum. Lesa meira
 
Bardukha

Bardukha með tónleika í Pakkhúsinu 2. maí - 16.04.2007 Menning

Hljómsveitin Bardukha heldur tónleika í Pakkhúsinu miðvikudaginn 2. maí á ferð sinni um Ísland. Balzamersveitin Bardukha var stofnuð 2003 og eru meðlimir Steingrímur Guðmundsson sem leikur á slagverk, Ástvaldur Traustason á harmoniku, Hjörleifur Valsson á fiðlu og Birgir Bragason á bassa. Þeir félagar leika eigin hræring af þjóðlagatónlist þar sem blandað er saman balknesku, slavnesku og arabísku tónkryddi. Frá stofnun hefur Bardukha verið iðin við að leika vítt og breitt um landið en einnig hafa þeir margoft komið fram í sjónvarpi og útvarpi. Þó að tónlist Bardukha virðist vera niðurnjörvuð og hefðbundin þjóðlagatónlist með taktríkum sígaunablæ er ekki rétt að láta blekkjast. Þessir piltar láta gjarnan gamminn geysa, taka sér óspart skáldaleyfi og sleppa sér lausum í frjálsum og persónulegum einleiks spunaköflum sem færir tónlistina í nýjar og óræðar víddir. Lesa meira
 
Mæðusveitin

Mæðusveitin Sigurbjörn í Pakkhúsið að kvöldi síðasta vetrardags - 16.04.2007 Menning

Mæðusveitin Sigurbjörn býður Hornfirðingum í Pakkhúsið að kvöldi síðasta vetrardags. Mæðusveitin heldur einskonar opna æfingu og eru allir velkomnir. Mæðusveitina Sigurbjörn skipa þeir Björn Sigfinnsson söngvari, Sigurður Hannesson bassaleikari, Sigurður Guðnason gítarleikari, og Sigurður Kr. Sigurðsson trommuleikari. Mæðusveitin er Hornfirðingum að góðu kunn og hefur tekið þátt í Norðurljósablús við góðar undirtektir. Með sveitinni spila tveir gestaspilarar, þau Anna Lilja Karlsdóttir trompetleikari og Heiðar Sigurðsson hljómborðsleikari. Lesa meira
 
Tríó Reynis Sigurðssonar

Tríó Reynis Sigurðssonar með tónleika í Pakkhúsinu í næstu viku - 12.04.2007 Menning

Tríó Reynis Sigurðssonar (TRES) heldur tónleika á vegum Listvinasjóðs Hornafjarðar í Pakkhúsinu sunnudaginn 22.apríl n.k. Tríóið skipa Reynir Sigurðsson á víbrafónn, Jón Páll Bjarnason á gítar og Gunnar Hrafnsson á bassa. Á tónleikunum verða jazz-skotnar útsetningar á lögum eftir Sigfús Halldórsson, Jón Múla Árnason, Atla Heimi, Oddgeir Kristjánsson. Einnig verk eftir Astor Piazzolla, Joseph Haydn, Gerry Mulligan, John Lewis, Antonio Carlos Jobim, Johann Sebastian Bach og Charlie Parker. Tónleikarnir hefjast kl.20:30 og er aðgangseyrir kr.1500. Veitingar verða á vegum kvennakórs Hornafjarðar. Tónleikarnir eru styrktir af F.Í.T. og F.Í.H Lesa meira
 
Listaverk eftir Margréti Jónsdóttur

Fundur handverks- og listiðnaðarfólks í Nýheimum - 12.04.2007 Menning

Handverks- og listiðnaðarfólk í Austur-Skaftafellssýslu heldur fund í Nýheimum á sunnudag. Á fundinn kemur Sunneva Hafsteinsdóttir frá HANDVERKI OG HÖNNUN. Hún mun ræða skilgreiningar í handverki og listiðnaði og reyna að skilgreina "Hvað er minjagripur" og sýna fjölda mynda. Sunneva veltir upp spurningum eins og Fá erlendir og innlendir ferðamenn þá minjagripi sem þeir eru að leita að? Eru einhverjar leiðir til að koma betur til móts við ferðamenn bæði erlenda og íslenska? Hvernig vilja Íslendingar að erlendir ferðamenn muni eftir landi og þjóð. Sunneva býður einnig upp á viðtalstíma og getur veitt ráð varðandi vöruþróun, umbúðahönnun, framsetningu og fl. Lesa meira
 
Stebbi & Eyfi

Stebbi og Eyfi með tónleika á Hótel Höfn á fimmtudagskvöld - 10.04.2007 Menning

Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson hafa verið á miklum túr um Ísland undanfarnar vikur og er tilgangurinn ný geislaplata þeirra félaga "Nokkrar notalegar ábreiður", sem kom út fyrir síðustu jól. Að sögn Eyfa þá hafa viðtökurnar verið með miklum ólíkindum og hafa þeir félagar fyllt hús nánast á hverjum viðkomustað og stemmning verið mikil. Þeir Stebbi og Eyfi hafa starfað saman í 19 ár, en aðeins núna fyrst gefið út sína fyrstu plötu saman. Þeir félagar eru þekktir fyrir margar perlur íslenskrar dægurtónlistar, lög eins og: "Nína", "Líf", "Í fylgsnum hjartans", "Álfheiður Björk", "Dagar", "Danska lagið", "Ég lifi í draumi", "Hjá þér", "Undir þínum áhrifum" o.m.fl. Stebbi og Eyfi verða með tónleika á Hótel Höfn fimmtudagskvöldið 12. apríl n.k. og hefjast tónleikarnir kl. 20.30. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica