Menning

Papós

Páskahelgin í Menningarmiðstöð og Jöklasetri - 31.03.2007 Menning

Á skírdag verður opnuð í Jöklasetrinu sýning um Papósverslun. Á sýningunni verða munir og skjöl frá gömlu versluninni á Papósi. Einnig verður í gangi bókamarkaður likt og verið hefur undanfarin ár. Þar verður til sölu úrval bóka frá bókasafninu á vægu verði. Opið verður alla páskadagana frá kl. 13.00 til 16.00. Á föstudaginn langa mun Menningarmiðstöðin í samvinnu við nefnd vegna 110 ára afmælis Hafnar, standa fyrir gönguferð með leiðsögn um Papós. Farið verður á einkabílum frá Jöklasetrinu kl. 13.00 Lesa meira
 
KASK úr gömlu myndasafni

Kaupfélagsskjöl á skjalasafn - 31.03.2007 Menning

Í gær föstudaginn 30. mars, afhenti Pálmi Guðmundsson kaupfélagsstjóri Héraðsskjalasafninu á Höfn mikið magn skjala úr eigu Kaupfélags Austur-Skaftfellinga. Flest eru þessi skjöl gömul, sum frá upphafsárum Kaupfélagsins og flest afar verðmæt, m.a. er bók sem inniheldur+ handskrifaða skrá yfir alla skráða félaga í Kaupfélaginu frá upphafi til ársins 1999. Þá afhenti Pálmi einnig mikið af ljósmyndum úr eigu kaupfélagsins. Lesa meira
 
Þórbergssetur

Þórbergssetur opið yfir páskana - 30.03.2007 Menning

Opið verður inn á sýningar í Þórbergssetri alla daga í dymbilviku og yfir páskana frá klukkan 13:00 – 17:00. Helgina 30. mars til 2. apríl koma 13 íslenskunemar frá Háskóla Íslands og dvelja á Hala. Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur mun halda fyrir þá erindi á laugardagskvöld og fyrirhugað er að vappa um söguslóðir og lesa saman verk Þórbergs og umhverfið. Einnig er ferðafólk, Íslendingar sem útlendingar bókað í gistingu og dvöl á Hala yfir páskana. Tilvalið er fyrir nærsveitunga að skreppa í Suðursveit og taka með sér gesti, skoða sig um úti í náttúrunni og koma við í Þórbergssetri. Þar verður myndasýning úr Suðursveit, vetrarmyndir frá nokkrum eyðibýlum og áhugaverðum stöðum og hægt að heyra sögur frá liðinni tíð ef óskað er. Einnig verða spilaðar upptökur af viðtölum og sögum Steinþórs á Hala í fjósbaðstofunni. Lesa meira
 
Frá æfingu Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu

Nýheimatónleikarnir Tónskólans á fimmtudag - 21.03.2007 Menning

Eins og greint var frá í síðustu viku verða “Nýheimatónleikarnir” Tókskóla A-Skaft. í þessari viku, nánar tiltekið fimmtudaginn 22.mars kl. 17.30. Þar koma fram nemendur sem komnir eru í mið- og framhaldsnám í tónskólanum. Að sögn Jóhanns Morávek þá er á þessum tónleikum flutt krefjandi verk eftir höfunda frá ýmsum tímabilum tónlistarsögunnar. Einnig kemur hljómsveit fram sem skipa hrynsveit og blásurum og mun sú sveit flytja 6 lög í 6 mismunandi tónlistarstílum, swing, rock, jass, dixíland, charleston og ballada. Undanfarin ár hefur skólinn haldið svona tónleika og sýnt þar hversu stórkostlegt tónlistarefni við eigum hér á Hornafirði. Lesa meira
 
Rúna Benný

Rúna Benný heldur einkasýningu í Luxembourg - 20.03.2007 Menning

Þann 28.mars mun Rúna Benný (Guðrún Benedikta Elíasdóttir) opna sína aðra einkasýningu í Luxembourg, en hún hélt sýningu hér á Höfn síðast á Humarhátíð 2003. Hún hefur einnig sýnt víða á Íslandi, í Frakklandi og Þýskalandi. Rúna Benný sem er "Hornfirðingur" heldur sýninguna á Hotel Parc Beaux-Arts eða Fagurlista hótelinu sem er í miðjum elsta hluta borgarinnar og leggur upp úr því að vera með öðru vísi hótel. Þar eru eingöngu svítur og er hver svíta tileinkuð verkum eins listamanns. En sýningin verður á jarðhæð í móttöku og veitingasal en einnig í einni svítu og tveimur “vínkjöllurum” sem fundust við uppgröft. Sýningin ber heitið Náttúruauðlindir þar sem viðfangsefnið er auðlindir manns og náttúru. Rúna Benný segist hafa málað steina um árabil og leikið sér að tvöfaldri merkingu í myndum og titlum. Hún segist fjalla um náttúruna, manninn í náttúrunni og náttúrunni í manninum, þar með talið náttúruna í sér. Lesa meira
 
Sýningin Þetta vilja börnin sjá

Sýningin Þetta vilja börnin sjá í Nýheimum - 12.03.2007 Menning

Um daginn heimsóttu krakkarnir frá Leikskólanum Nýheima með kennara sínum til að skoða sýninguna "Þetta vilja börnin sjá". Sýningin hefur vakið athygli þeirra sem hana hafa heimsótt enda er um að ræða skemmtilega sýningu þar sem sjá má myndskreytingar í úr íslenskum barnabókum. Sýningin er opin út þennan mánuð og þeir sem ekki hafa látið að því verða að leggja leið sína í nýheima til að bera sýninguna augum ættu að gera það hið fyrsta. Þessi sýning er liður í starfsemi Menningarmiðstöðvar sem miðstöðvar bókmennta á austurlandi. Að sögn Bjargar Erlingsdóttur forstöðumanns menningarmiðstöðvar þá er þessi sýning ekki aðeins fyrir börn, verkefnin eru fjölbreitt, vel unninn og áhugaverð fyrir alla aldurshópa. Lesa meira
 
Snjótittlingur (mynd BA)

Fuglarnir í garðinum okkar - 06.03.2007 Menning

Einar Ó. Þorleifsson náttúrufræðingur heldur fyrirlestur á vegum Fuglaathugunarstöðvar Austurlands og verður fyrirlesturinn haldinn í Nýheimum í kvöld undir heitinu "Fuglarnir í garðinum okkar". Einar mun þar fjalla um helstu fuglategundir sem er að vænta í góðum fuglagarði og hvernig hægt er að laða fugla að garðinum með vali og gróðursetningu á fuglavænum trjám og runnum sem skapa skjól og hreiðurstaði eða fæðu handa fuglunum. Lesa meira
 
Norðurljósablús 2007

Breyting á dagskrá Norðurljósablúss - 02.03.2007 Menning

Sú breyting verður á dagskrá Norðurljósablúss í kvöld að tónleikar Blúsmönnum Andreu og Kentár falla niður. Þetta er vegna veðurs, aflýst var flugi sem þessar hljómsveitir áttu að koma með til Hornafjarðar. Pálmi Gunnarsson og félagar í Park Project eru hinsvegar á leiðinni akandi og munu að öllu óbreyttu leika á tónleikum í Sindrabæ í kvöld.. Hljómsveitin Grasrætur leikur á Víkinni í stað Kentárs og tónleikar Mood verða á sínum stað á Kaffi Horninu. |nl|Eftir að park Project hefur lokið sér af í Sindrabæ í kvöld verður þar allsherjar blúsdjamm, bærinn er fullur af spilurum og söngvurum sem munu skemmta sér og öðrum fram eftir kvöldi. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica