Menning

Fiðlarinn á þakinu

Ákveðið að bæta við aukasýningu í kvöld - 26.02.2007 Menning

Söngleikurinn Fiðlarinn á þakinu hefur verið sýndur fyrir fullu húsi síðan hann var frumsýndur föstudaginn 2. febrúar. Sýndar hafa verið 8 sýningar og hefur verið uppselt á þær allar. Vegna mikillar aðsóknar hefur verið ákveðið að bæta við sýningu í kvöld, mánudaginn 26. febrúar og hefst hún kl. 20.00. Miðapantanir í síma 478 1550 Lokasýning á Fiðlaranum sem jafnframt er 10. sýningin verður síðan þriðjudaginn 27. febrúar. Lesa meira
 
Norðurljósablús 2007

Norðurljósablús 2007 haldin í annað sinn - 17.02.2007 Menning

Blúshátíðin Norðurljósablús verður haldin í annað sinn á Höfn 1. - 4. mars n.k. Aðalgestir hátíðarinnar er sænska hljómsveitin Jump 4 Joy og er þetta í fyrsta sinn sem sveitin leikur hér á landi. Nokkrir af helstu blús-tónlistarmönnum landsins koma fram á hátíðinni og leika á öldurhúsum Hafnar og í hinu fornfræga félagsheimili Sindrabæ. Á hátíðinni koma fram 36 innlendir og erlendir tónlistarmenn í 8 hljómsveitum. Meðal þeirra sem koma fram eru hljómsveit Pálma Gunnarssonar, Park Project en auk Pálma eru Gunnlaugur Briem, Kristján Edelstein, Agnar Már Magnússon og Hrund Ósk Árnadóttir í sveitinni. Andrea Gylfadóttir syngur ásamt blúsmönnum sínum, þeim Guðmundi Péturssyni, Haraldi Þorsteinssyni, Jóhanni Hjörleifssyni og Einari Rúnarssyni. Þá kemur hljómsveitin Kentár til Hafnar í annað sinn og að þessu sinni leikur hinn goðsagnakenndi gítarleikari Björgvin Gíslason með Kentárum. Bergþór Smári kemur með hljómsveit sína Mood og æringjarnir í VAX spila einnig á blúshátíðinni. Síðast en ekki síst má nefna nýliðana í Grasrótum frá Hafnarfirði og heimamennina í Mæðusveitinni Sigurbirni sem spila opinberlega í fyrsta sinn á Norðurljósablús. Lesa meira
 
Þorbjörg Arnórsdóttir

Við Skaftfellingar eigum merkilega sögu og arfleifð - 16.02.2007 Menning

Þórbergssetur á Hala hlaut menningarverðlaun Hornafjarðar ásamt Hornfirska skemmtifélaginu. Það kom fáum á óvart að Þórbergssetur skyldi fá verðlaun svo myndarlega hefur verið að öllu staðið þar. Þorbjörg Arnórsdóttir tók á móti menningarverðlaununum í Nýheimum síðastliðinn föstudag og í þakkarávarpi gaf hún nokkra innsýn í það starf sem gert hefur Þórbergssetur að því menningarsetri sem það er í dag. Þorbjörg varð við beiðni vefsins um að fá að birta þetta ávarp: Það er okkur aðstandendum Þórbergsseturs mikill heiður að vera með ykkur hér í dag og taka á móti menningarverðlaunum Hornafjarðar fyrir hönd Þórbergsseturs á Hala í Suðursveit. Eins og flestum er kunnugt er Þórbergssetur nú risið eftir margra ára samstarf fjölmargra aðila sem lagt hafa hönd á plóginn. Það starf hefur einkennst af markvissri áætlanagerð og skipulagðri vinnu undanfarin 6 ár, en að baki hefur legið sterkur hugsjónaandi og mikill velvilji og hvatning víða að úr samfélaginu bæði úr nærumhverfi okkar hér í Sveitarfélaginu Hornafirði, en einnig hvert sem leitað hefur verið eftir aðstoð og stuðningi bæði faglegum, fræðilegum og fjárhagslegum. Lesa meira
 
Fiðlarinn á þakinu

Fiðlarinn á Þakinu. - 14.02.2007 Menning

Eftirvæntingin lá í loftinu í salnum í Mánagarði sunnudagskvöldið 4. febrúar s.l. þegar önnur sýning Leikhóps Mána og Leikfélags Hornafjarðar var að hefjast. Eftirvæntingin var ef til vill hjá sumum blandin örlitlum ótta og spurn. Var hægt að koma slíku stórvirki fyrir á litla sviðinu í sveitaleikhúsinu, með lítið af þeim nútímatæknibúnaði sem stóru leikhúsin ráða yfir? Var hægt að safna saman í fremur fámennu samfélagi tugum hæfileikafólks, sem væri tilbúið að leggja á sig í launalausri eftirvinnu og næturvinnu allt það erfiði sem slíku fylgir? Voru Hornfirðingar nú kannski að fara örlítið fram úr sjálfum sér? Hafi slíkar hugsanir Lesa meira
 
Ímyndunarveikin 1991

Afmæliskveðja í tilefni aldarafmælis - 12.02.2007 Menning

Þá er öldin 20. gekk í garð 1. janúar 1901 var henni fagnað mjög og fólkið í landinu bar í brjósti sínu þá einlægu von að hin nýja öld myndi færa þjóðinni mildari lífskjör heldur en áður höfðu verið. Á þeim tímamótum ortu þjóðskáldin hvatningarkvæði þar sem þau lýstu þeirri vissu að komandi ár, myndu böl bæta og börn og ungmenni sem upp voru að alast ættu möguleika til annarra og betri lífskjara heldur en kynslóðir liðinna alda. Á fyrsta áratug aldarinnar markaði ungmennafélagshreyfingin sín fyrstu spor í sögunni. Fyrsta ungmennafélag landsina var stofnað á Akureyri 7. janúar 1906 og fyrirmyndin var sótt til æskufólks í Noregi. Hin nýja vakning meðal ungs fólks hér heima fékk afar góðar viðtökur og breiddist hratt út um byggðir landsins. Fyrsta ungmennafélagið í Austur- Skaftafellssýslu var stofnað í Nesjahreppi 27. janúar 1907 og á því nú um þessar mundir 100 ára afmæli. Lesa meira
 
Afhending Menningarverðlauna 2007

Hornfirska Skemmtifélagið og Þórbergssetur hlutu Menningarverðlaun 2006 - 10.02.2007 Menning

Menningarverðlaun voru afhent í Nýheimum í gær og voru það Hornfirska Skemmtifélagið og Þórbergssetur hlutu Menningarverðlaun 2006. Í rökstuðningi með ákvörðun Mennignarmálanefndar segir: Hornfirska Skemmtifélagið er einn af hornsteinum menningarlífs á Hornafirði. Félagar í Skemmtifélaginu hafa af mikilli atorku og metnaði staðið fyrir söngdagskrá og blúshátíð. Starf þeirra hefur verið góð kynning fyrir Hornafjörð og gestir sem sækja viðburði Hornfirska Skemmtifélagsins koma víða að. Um Þórbergssetur segir í rökstuðningi: Þórbergssetur á vart sinn líka Íslandi. Setrið er glæsilegur minnisvarði en um leið miðstöð mikillar menningarstarfsemi þar sem bókmenntir, rannsóknir og ferðamál blandast á áhrifaríkan hátt. Þórbergssetur er vitnisburður um frumherjakraft, faglega nálgun og metnaðarfulla framsetningu. Útkoman er glæsileg og til sóma fyrir þá sem að hafa komið. Lesa meira
 
Frá afhendingu menningar- og umhverfisverðlauna

Afhending styrkja, menningarverðlauna og umhverfisverðlauna Hornafjarðar - 02.02.2007 Menning

Afhending styrkja, menningarverðlauna og umhverfisverðlauna fer fram við athöfn í Nýheimum föstudaginn 9. febrúar. Send hafa verið út bréf til styrkhafa og þeirra sem tilefndir eru til menningarverðlauna en það eru: Hornfirska skemmtifélagið fyrir metnaðarfullt starf og dagskrárnar Blúshátíð og American Graffiti, Gunnlaugur Þröstur Höskuldsson tónlistarkennari fyrir starf að tónlistarmálum, Þorbjörg Arnórsdóttir og Fjölnir Torfason fyrir Þórbergssetur, Sveinbjörn Imsland fyrir frumkvöðlastarf við miðlun m.a. menningarefnis innan og utan Sveitarfélagsins, Pálína Þorsteinsdóttir skólastjóri fyrir markvissa menningarstarfsemi í skólastarfi, Þórbergssetur, fyrir þá uppbyggingu sem varð með samstarfi fjölmargra aðila innan og utan sveitarfélagsins. Lesa meira
 
Fiðlarinn á þakinu

Fiðlarinn á þakinu - 01.02.2007 Menning

Söngleikurinn Fiðlarinn á þakinu í leikstjórn Ingunnar Jensdóttur verður frumsýndur í Mánagarði föstudaginn 2.febrúar kl 20:00 Það er Ungmennafélagið Máni í Nesjum sem stendur fyrir sýningunni ásamt Leikfélagi Hornafjarðar og Samkórnum og er leiksýningin sett upp í tilefni 100 ára afmælis Ungmennafélagsins Mána. Með aðalhlutverk fara sr. Sigurður Kr. Sigurðsson sem leikur Tevye mjólkurpóst, Ragnheiður Sigjónsdóttir leikur Goldu eiginkonu Tevye og eldri dætur þeirra þrjár leika Elín Haraldsdóttir, Maríanna Jónsdóttir og Fjóla Hjaltadóttir. Jóhann Moravek hefur útsett tónlist fyrir fimm manna hljómsveit og stjórnar hann hljómsveitinni. Kristín Jóhannesdóttir stjórnar kórsöng. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica