Menning

Antik

Kaffihúsakvöld hjá Nemendaráði FAS - 31.01.2007 Menning

Annað kvöld þ.e. fimmtudagskvöldið 1. febrúar heldur Nemendaráð FAS Kaffihúsakvöld í Pakkhúsinu. Að sögn Ragnars Fjölnissonar hjá Nemandaráði þá er kaffihúsakvöldið liður í fjáröflun þeirra fyrir opna viku Framhaldskólans. Í Pakkhúsinu verður boðið upp á kleinur, vöfflur og kökur ásamt kaffi og kakó. Þar mun verða lifandi órafmögnuð tónlist frá hljómsveitinni Antik sem þykir einstaklega skemmtileg hljómsveit og á sér stórann aðdáendahóp. Á kaffihúsakvöldinu verða einnig ýmsar aðrar uppákomur. Ragnar segir að nemendaráð muni kappkosta við að stemningin verði kósý og þægileg enda Pakkhúsið draumastaður til að koma saman og hvetur hann alla til að mæta enda allir velkomnir. Lesa meira
 
Guðný Svavarsdóttir

Útlán bókasafnsins nærri 26 þúsund eintök - 29.01.2007 Menning

Á síðasta ári voru útlán í bókasafni Menningarmiðstöðvarinnar A-Skaft. tæp 26 þúsund eintök. Að sögn Guðnýjar Svavarsdóttur bókavarðar eru þetta aðeins færri útlán en árið 2005 en þá var metár í útlánum. Guðný segir að krakkarnir í Hafnar og Nesjaskóla séu mjög dugleg að lesa ef dæma má eftir útlánum í bókasöfnunum sem eru í skólunum. Vinsælasta og mest eftirsótta bókin núna er nýja skáldsagan Konungsbókin eftir Arnald Indriðason. Sögustundin hennar Ragnhildar Guðmundsdóttur fyrir 3-5 ára börnin, sem er einu sinni í viku yfir veturinn, er alltaf jafn vinsæl og meðan lesið er fyrir börnin eiga foreldrarnir notalega stund á safninu. Góð tölvuaðstaða er á safninu og er mikið notuð einkum af ferðamönnum og einnig af þeim sem eru tímabundið hér á staðnum. Lesa meira
 
Dauði og jarðarber í Nýheimum

Auglýsing um verkefnastyrki til menningarstarfs á Austurlandi - 25.01.2007 Menning

Menningarráð Austurlands auglýsir eftir nú eftir umsóknum um styrki á grunni samnings sveitarfélaga á Austurlandi og menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis um menningarmál. Þeir styrkir sem verða veittir eru til menningarstarfs og menningartengdrar ferðaþjónustu á Austurlandi. Ein úthlutun verður árið 2007, í byrjun mars. Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Austurlandi geta sótt um styrki til margvíslegra menningarverkefna en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag. Áhersla við styrkveitingu 2007 verður samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað, nýsköpun á sviði lista- og menningarstarfs, verkefni sem miða að fjölgun starfa og verkefni sem stuðla að eflingu fagþekkingar á sviði menningar og lista. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica