Menning

MMH 2005 afhending

Auglýst eftir tilnefningum til Menningarverðlauna 2006 - 29.12.2006 Menning

Menningarmálanefnd Hornafjarðar auglýsir nú eftir tilnefningum til Menningarverðlauna Hornafjarðar fyrir árið 2006. Í reglum um verðlaunin segir: Verðlaunin eru veitt einstaklingi, stofnun eða samtökum sem viðurkenning fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar á nýliðnu ári. Hlutverk verðlaunanna er einnig að vera almenn hvatning til eflingar menningar- og listastarfs í sveitarfélaginu. Menningarverðlaun fyrir árið 2005 hlutu nemendur Framhaldsskólans í Austur Skaftafellssýslu fyrir Unicef- tónleikana sem haldnir voru í íþróttahúsinu í haust og fyrir hina geysivinsælu uppfærslu á söngleiknum Superstar sem sýndur var í fyrra vetur og hlaut frábærar viðtökur. Lesa meira
 
Jólapakkhús

Jóla-bókmenntakvöld í Pakkhúsinu í kvöld - 07.12.2006 Menning

Nú líður að jólum og hluti af jólastemningunni er að lesa góðar bækur. Eins og önnur jól er mikið af bókum sem koma nú út og af því tilefni verður jóla-bókmenntakvöld hjá Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Þessi bókmenntakynning sem er orðinn árlegur viðburður Menningarmiðstöðvarinnar verður haldin í Pakkhúsinu sem þekkt er fyrir að skapa rétta andrúmsloftið fyrir kvöld sem þetta. Ókeypis aðgangur er að kynningunni en samkoman er styrkt af Listvinasjóði, Sparisjóði Hornafjarðar, Landsbankanum, Skinney-Þinganesi og VÍS. Á dagskrá er upplestur úr nýútkomnum bókum, tónlistaratriði og Kvennakórskonur munu selja veitingar. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica