Menning

Nýheimar

Nýheimadagur á föstudag - 22.11.2006 Menning

Föstudaginn 24. nóvember frá kl. 12 og 17 verður haldin kynning á starfsemi og húsnæði þekkingarsetursins Nýheima. Allt frá því að Nýheimar hófu starfsemi sína árið 2002, hafa Nýheimar vaxið og dafnað og eru í dag eitt öflugasta þekkingarsetur landsins. Nýheimar eru ekki bara fallegt hús á Hornafirði heldur eru þeir sérhannað húsnæði og umgjörð um starfsemi þar sem verið er að vinna og sinna menningu, menntun, rannsóknum og nýsköpun. Nýheimar eru stór vinnustaður í samfélagi okkar og í dag eru 20 fyrirtæki eða stofnanir með starfsemi sína í húsinu og þar vinna um 40 manns. Nýheimar er eign okkar allra og öllum opið. Starfsmenn Nýheima bjóða gestum og gangandi að koma í Nýheima og kynna sér þá fjölbreyttu starfsemi sem fer fram í húsinu. Dagskrá hefst kl. 12. Boðið verður uppá kaffi og kleinur. Lesa meira
 
Hvað gengur eiginlega á í Bókasafninu?

M:orðið í Bókasafninu - 10.11.2006 Menning

Hvað gengur eiginlega á í Bókasafninu? Það lítur út fyrir að morð hafi verið framið, rannsókn stendur yfir en lögreglan verst allra frétta. Ljóst þykir að voðaverk hafi verið framið og þögn lögreglu hefur orðið til þess að ýmsar getgátur eru á lofti. Hver var myrtur, hver framdi ódæðisverkið og hver var ástæðan? Og síðast en ekki síst – hver er Stella Blómkvist og hvernig tengist hún þessu máli? Þessum spurningum og fleirum verður ekki svarað fyrr en á mánudagskvöld – komdu á Bókasafnið klukkan 18 og hjálpaðu til við að leysa þetta flókna og óvenjulega sakamál. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica