Gunnar og Jónas halda tónleika í Nýheimum næstu helgi
Gunnar Guðbjörnsson og Jónas Ingimundarson munu á leið sinni um landið halda tónleika í Nýheimum n.k. sunnudag. Á dagskránni er hluti af þýskri ljóðadagskrá en þar að auki munu þeir flytja íslensk sönglög og ítölsk. Gunnar hefur um árabil starfað sem óperu- og tónleikasöngvari. Hann hefur mest starfað í Evrópu en einnig ferðast til Asíu og Bandaríkjanna til að syngja. Hann hefur verið fastráðinn í óperuhúsum í Þýskalandi og Frakklandi en síðustu árin hefur hann verið búsettur á Íslandi. Hann hefur þó ekki sagt skilið við söng erlendis og er m.a. á leið til Singapúr í septemberlok og mun í nóvember n.k. syngja í Þýskalandi.
Jónas Ingimundarson þarf vart að kynna enda hefur hann lengi verið einn af okkar viðurkenndustu tónlistarmönnum. Hann hefur leikið einleik og verið meðleikari fjölda einsöngvara og hljóðfæraleikara um árabil bæði á Íslandi og víða erlendis. Þar að auki hefur hann stundað ötult kynningarstarf og hefur hann fengið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir störf sín.
Samstarf Gunnars og Jónasar hefur staðið í um 20 ár. Þeir hafa hljóðritað saman fjölda geisladiska og komið fram saman víða á Íslandi en auk þess hafa þeir flutt tónlist saman víða erlendis, m.a. í Wigmore Hall í London og óperuhúsinu í Wiesbaden í Þýskalandi.
Tónleikarnir hefjast kl. 17:00



