Sumarlestur 2006 á Menningarmisðtöð
13 lestrarhestar á aldrinum 6?13 ára tóku þátt sumarlestri á bókasafni Menningarmiðstöðvar síðastliðið sumar. (Á myndina vantar 2 börn). Það er viðurkennd staðreynd að börn sem ná góðum tökum á lestri, standa betur að vígi í námi. Þar að auki er lestur skemmtileg afþreying og viljum við hvetja börn til að taka þátt. Í sumar lásu börnin alls 108 bækur. Þau komu saman að loknu sumri í kaffiteríu Nýheima og fengu hressingu ásamt smá gjöf frá bókasafninu fyrir frammistöðuna.
Við gerum ráð fyrir að sumarlesturinn verði með svipuðu sniði næsta sumar og vonumst til að sjá sem flesta lestrarhesta.



