Menning
Skaftafell
Skaftafell
Skaftafell

08.09.2006

Afurðir þjóðgarðsins til sýnis á bókasafninu

Sýning á afurðum þjóðgarðsins verður opnuð í bókasafninu á Höfn n.k. mánudag, 11. sept. og stendur hún til miðvikudagsins 20. sept. Sýningin er árangur hugmyndasamkeppni um þjóðgarðsafurð í ríki Vatnajökuls sem hleypt var af stokkum í janúar síðastliðnum. Hugmyndasamkeppnin var öllum opin, en háð skilyrðum um að afurðin tengdist svæðinu umhverfis Vatnajökul, væri gæðaframleiðsla og markaðsvæn. Afurðin nær bæði til vöru og þjónustu. Alls 23 hugmyndir bárust í keppnina, hver annarri áhugaverðri. Fjöldi þátttakenda og gæði hugmyndanna sýnir óneitanlega þá sköpunargleði sem býr með þjóðinni. Fyrstu verðlaun hlaut Bjarney Ingólfsdóttir fyrir Jökulskallann, sem er gæruskinnshúfa. Önnur verðlaun hlaut Jóna Björg Jónasdóttir fyrir Náttúran úr ull, þ.e.silkihúfa, griffill og trefill. Þriðju verðlaunin hlaut Hornfirska Álafélagið, Fruman á Höfn, fyrir verkefni sem ber heitið Matur og menning, áll í ríki Vatnajökuls.

Hugmyndasamkeppnin er hluti af svokölluðu NEST (Northern Environment of Sustainable Tourism) verkefni sem er samvinnuverkefni á milli Íslands, Finnlands, Svíþjóðar og Skotlands styrkt af Norðurslóðaáætlun ESB. Á sýningunni verða jafnframt myndir af vinnings hugmyndum um þjóðgarðsafurð frá þátttökulöndum NEST.

Sýningin er öllum opin og allir hjartanlega velkomnir.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica