Menning

Þórbergur Þórðarson

Málþing um Þórberg Þórðarson í október - 26.09.2006 Menning

Þann 13. og 14. október verður haldið málþing um Þórberg Þórðarson að Þórbergssetri á Hala í Suðursveit. Málþingið er haldið í tilefni af opnun Þórbergsseturs í sumar og auk fjölbreytilegra fyrirlestra verður boðið upp á göngu- og landkynningarferðir um sögusvið Suðursveitarbóka Þórbergs. Málþingið er öllum opið og skráning fer fram hjá Soffíu Auði Birgisdóttur, starfsmanni Háskólaseturs á Höfn, í síma 4708042 og 8482003 eða í tölvupósti: soffiab@hi.is. Þátttökugjald er 3.500 kr. og innifalið í verðinu er kaffi og kvöldverður á föstudag, hádegisverður á laugardag og aðgangur að sýningu á Þórbergssetri. Nauðsynlegt er að koma með hlý útiföt og regnföt, því ,,stundum? rignir í Suðursveit. Ef fólk vill lengja dvölina, og nota sunnudaginn til frekari útiveru og söguferða þá eru merktar gönguleiðir í nágrenni Hala og að Klukkugili í Papbýlisfjalli. Lesa meira
 
Þórbergssetur

Þórbergssetur - opið allt árið - 22.09.2006 Menning

Þórbergssetur var opnað 1. júlí síðastliðinn. Segja má að þar hafi verið margt um manninn í sumar. Gestir safnsins eru nú um 4000 talsins en auk þess hafa margir litið við í kaffi. Húsið vekur mikla athygli frá þjóðveginum og margur forvitinn vegfarandi hægir á ferðinni eða staldrar við um stund og virðir fyrir sér bókakilina hans Þórbergs sem skreyta norðurhlið hússins. Þórbergssetur verður opið í allan vetur. Opnunartími í september er þannig að opið er alla daga frá 10 - 17. Frá og með 1. október verður opið frá 12 - 17 alla daga nema mánudaga. Tekið er á móti tímapöntunum fyrir hópa sem vilja heimsækja safnið utan þess tíma í síma 867 2900. Stutt er heim á Hala og velkomið að banka upp á ef komið er að lokuðum dyrum. Lesa meira
 
Björg Erlingsdóttir

Nýr forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar - 13.09.2006 Menning

Björg Erlingsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Því starfi gengdi áður Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri. Björg er fædd í Reykjavík 1970, uppalin á Akureyri en hefur búið í Reykjavík síðustu ár. Hún er með B.A-próf í þjóðfræði frá Háskóla Íslands, Cand.Mag. próf frá Háskólanum í Lundi, Svíþjóð auk þess sem hún lauk prófi í Safnafræði frá sama skóla. Eftir nám í Svíþjóð tók við vinna á Listasafni Reykjavíkur en með vinnu hefur hún stundað meistaranám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands. Auk þess að vinna á Listasafni Reykjavíkur hefur hún unnið á sambýli fyrir fatlaða en hún hefur verið viðloðandi þann geira frá menntaskólaárunum á Akureyri. Lesa meira
 
Sumarlestur-2006

Sumarlestur 2006 á Menningarmisðtöð - 11.09.2006 Menning

13 lestrarhestar á aldrinum 6–13 ára tóku þátt sumarlestri á bókasafni Menningarmiðstöðvar síðastliðið sumar. (Á myndina vantar 2 börn). Það er viðurkennd staðreynd að börn sem ná góðum tökum á lestri, standa betur að vígi í námi. Þar að auki er lestur skemmtileg afþreying og viljum við hvetja börn til að taka þátt. Í sumar lásu börnin alls 108 bækur. Þau komu saman að loknu sumri í kaffiteríu Nýheima og fengu hressingu ásamt smá gjöf frá bókasafninu fyrir frammistöðuna. Lesa meira
 
Skaftafell

Afurðir þjóðgarðsins til sýnis á bókasafninu - 08.09.2006 Menning

Sýning á afurðum þjóðgarðsins verður opnuð í bókasafninu á Höfn n.k. mánudag, 11. sept. og stendur hún til miðvikudagsins 20. sept. Sýningin er árangur hugmyndasamkeppni um þjóðgarðsafurð í ríki Vatnajökuls sem hleypt var af stokkum í janúar síðastliðnum. Hugmyndasamkeppnin var öllum opin, en háð skilyrðum um að afurðin tengdist svæðinu umhverfis Vatnajökul, væri gæðaframleiðsla og markaðsvæn. Afurðin nær bæði til vöru og þjónustu. Alls 23 hugmyndir bárust í keppnina, hver annarri áhugaverðri. Fjöldi þátttakenda og gæði hugmyndanna sýnir óneitanlega þá sköpunargleði sem býr með þjóðinni. Fyrstu verðlaun hlaut Bjarney Ingólfsdóttir fyrir Jökulskallann, sem er gæruskinnshúfa. Önnur verðlaun hlaut Jóna Björg Jónasdóttir fyrir Náttúran úr ull, þ.e.silkihúfa, griffill og trefill. Þriðju verðlaunin hlaut Hornfirska Álafélagið, Fruman á Höfn, fyrir verkefni sem ber heitið Matur og menning, áll í ríki Vatnajökuls. Lesa meira
 
Þórbergssetur

Hátíðaþing í Þórbergssetri - 04.09.2006 Menning

Þórbergssetur á Hala í Suðursveit opnaði formlega sýningarhúsnæði sitt þann 1. júlí síðast liðinn. Jöfn og góð aðsókn hefur verið að setrinu í sumar og um 4000 manns hafa komið í heimsókn og skoðað sýningar. Einnig hefur fjöldi fólks komið í setrið til að njóta veitinga og kynna sér þau verkefni sem Þórbergssetur vinnur að. Áberandi er hve margir spyrja um bækur Þórbergs, hvar þær séu fáanlegar og erlendir ferðalangar spyrja mikið um þýðingar á bókum hans. Ljóst er að framundan er afar spennandi starf sem lýtur að því að kynna verk Þórbergs betur fyrir erlendum gestum, en einnig að tengja verkefnið frekar sögu og menningu Suðursveitar. Í vetur verður hafist handa við að markaðssetja verkefnið fyrir nemendahópa, og segja má að óteljandi verkefni geti tengst þeim sýningum sem þegar eru komnar upp í Þórbergssetri. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica