Menning
María Gísladóttir
María Gísladóttir
María Gísladóttir

07.07.2006

Lokun á bókasafni Menningarmiðstöðvar

Nú stendur fyrir dyrum að uppfæra bókasafnskerfið Gegni og því verður bókasafn Menningarmiðstöðvar lokað dagana 10.- 16.júlí. Áætlað er að taka nýju útgáfuna í notkun mánudaginn 17. júlí. Nýja útgáfan var hönnuð með það í huga að einfalda verkferla fyrir starfsfólk bókasafna og á því að vera talsvert auðveldari í notkun en sú fyrri. |Lokun kerfisins þessa daga er óhjákvæmileg og því hafa mörg bókasöfn tekið þá ákvörðum að loka alfarið þessa viku.
Lánþegar geta skilað bókum í lúgu við inngang sem snýr að Kirkjubraut.

Svarað verður í síma á meðan lokun stendur yfir og farið verður í steinaleit þriðjudaginn 11.júlí.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica