Menning

Söngfuglar að sunnan

Söngfuglar að sunnan í Nýheimum - 24.07.2006 Menning

Næstu helgi verður söngskemmtun í Nýheimum, þá koma söngfuglarnir Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Bergþór Pálsson ásamt Sigrún Eðvaldsdóttir fiðlusnillingi og Kjartani Valdemarssyni píanóleikara. Dagskráin verður fjölbreytt og víst er að glatt verður á hjalla. Flutt verða velþekkt íslensk sönglög, ódauðlegar perlur Edith Piaf, þess verður minnst að 250 ár eru liðin frá fæðingu Mozarts og lög úr fyrsta íslenska söngleiknum Skrúðsbóndanum eftir Björgvin Guðmundsson. Lesa meira
 
María Gísladóttir

Lokun á bókasafni Menningarmiðstöðvar - 07.07.2006 Menning

Nú stendur fyrir dyrum að uppfæra bókasafnskerfið Gegni og því verður bókasafn Menningarmiðstöðvar lokað dagana 10.- 16.júlí. Áætlað er að taka nýju útgáfuna í notkun mánudaginn 17. júlí. Nýja útgáfan var hönnuð með það í huga að einfalda verkferla fyrir starfsfólk bókasafna og á því að vera talsvert auðveldari í notkun en sú fyrri. |Lokun kerfisins þessa daga er óhjákvæmileg og því hafa mörg bókasöfn tekið þá ákvörðum að loka alfarið þessa viku. Lánþegar geta skilað bókum í lúgu við inngang sem snýr að Kirkjubraut. Lesa meira
 
IFE_TOLENTINO_og_Co

Ife Tolentino á Hótel Höfn sunnudagskvöld - 06.07.2006 Menning

Hinn frábæri brasilíski söngvari og gítarleikari, Ife Tolentino mun koma til Hafnar og spila sólríka og seiðandi bossa nova- og sambatónlist fyrir Hornfirðinga. Ferðin til Hafnar er upphaf á ferð hans um landið en hann mun spila með félögum sínum á Vopnafirði, Seyðisfirði og í Reykjavík. Með honum koma fram þeir Ómar Guðjónsson gítar, Óskar Guðjónsson saxófónn (Meisalingar) og Þorvaldur Þór Þorvaldsson sem spilar á trommur. Þetta er í fimmta sinn sem Ife kemur til landsins og hefur hann ávallt fengið frábærar viðtökur og komið öllum í sumarskap. Lesa meira
 
Ólafur Elíasson

Ólafur Elíasson píanóleikari heldur tónleika í Nýheimum - 03.07.2006 Menning

Píanóleikarinn Ólafur Elíasson heldur tónleika í Nýheimum þriðjudagskvöldið 4. júlí. Á efnisskránni eru verk eftir Schubert og Debussy ásamt 7 píanóetýðum eftir Chopin, Liszt, Moszkowski og Schriabin. Etýðurnar (æfingarnar) eru á meðal erfiðustu verka píanóbókmenntanna og eru sumar jafnframt þekktustu píanóverk sögunnar svo sem La Campanella eftir Liszt og Byltingaretýðan eftir Chopin. Á tónleikunum mun Ólafur fjalla um verkin á léttum nótum og er þetta frábært tækifæri fyrir áhugamenn um sígilda tónlist til að kynnast heimi píanótónlistar. |nl|Ólafur var nemandi Rögnvaldar Sigurjónssonar heitins en stundaði framhaldsnám fyrst í París hjá hinum heimsþekkta píanóleikara Vlado Perlemuter og síðar í Englandi, m.a. við konunglega tónlistarháskólann í London (Royal Academy of Music) þar sem hann lauk einleikaraprófi 1994. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica