Menning
Blómaskoðunarferð MMH 2006
Blómaskoðunarferð MMH 2006
Blómaskoðunarferð MMH 2006 (@Jónatans)
Mynd 5 af 6
1 2 3 4 5 6

29.06.2006

Fundu alls 27 tegundir af blómum og plöntum

Í gær miðvikudag fóru 10 börn í blómaskoðunarferð á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar í umsjón Rannveigar Einarsdóttir og Maríu Gísladóttir. Fengin var að láni Sindrarútan, og haldið inn að Ketillaugarfjalli í Nesjum. Byrjað var á því að tína blóðberg í blóðbergste sem drukkið var í lok ferðar. Jónatan fékk í upphafi ferðar það hlutverk að vera ljósmyndari hópsins. Alls fundust 27 tegundir af blómum og plöntum, en Anna Birna sá um að skrá niður nöfn þeirra. Það voru: lyfjagras, músareyra, ljónslappi, holtasóley, meyjarauga, jakobsfífill, gullmura, hvítmaðra, gulmaðra, brjóstagras, lambagras, kornsúra, grasvíðir, blóðberg, krækiberjalyng, mosi, geldingahnappur, bláklukka, hrafnaklukka, klettafrú, fálkapungur, fíflar, síkisgras, elfting, skollafingur, steindepla og klettafrú. Einnig fundust nokkur kindabein en slíkar gersemar eru ekki á hverju strái.

Síðan var farið ofan í Þverárgil þar sem að nestið var borðað og einhverjir fóru í fótabað.
Eins og sést á myndunum var þetta fjölbreytt og skemmtilegt.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica