Sumar-Humar tónleikar 2006
Hinir árlegu hádegistónleikar Lúðrasveitar Hornafjarðar og Lúðrasveitar Tónskólans verða haldnir í Íþróttarhúsinu á Höfn sunnudaginn 7. maí. Fram koma yngri deild tónskólans ásamt byrjendum, eldri deild og Lúðrasveit Hornafjarðar. Efnið er fjölbreitt pop-, jass- og tijuana-tónlist. Einnig tekur Nanna Halldóra Imsland lagið með lúðrasveitarundirleik. Á meðan tónlistin hljómar, gæða áheyrendur sér á ljúffengri Humarsúpu sem kokkar Hótels Hafnar hafa aðstoðað með og brauði frá Jóni bakara. Hljóðfæraleikararnir þjóna svo til borðs.
Tónleikarnir hefjast kl: 12.00. Aðgangseyrir aðeins krónur 1500- börn í fylgd með fjölskyldu sinni fá frítt.


