Menning
Frá æfingu Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu
Frá æfingu Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu
Frá æfingu Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu @Tónskóli A-Skaft (Frá myndasafni 2004)

26.04.2006

Tónskólinn með tónleika í Nýheimum

Föstudaginn 28. apríl verða tónleikar í Nýheimum á vegum Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu þar sem lengra komnir nemendur skólans ætla að spila metnaðarfulla dagskrá. Þetta eru seinni tónleikarnir af tveimur en þeir fyrri voru haldnir 2. apríl s.l. Á tónleikunum verður m.a. píanóleikarar, þverflautuleikur, bassaleikur og saxófónleikur. Að lokum spilar léttsveit úr skólanum undir stjórn Gunnlaugs Þrastar ýmsar tónlistarstefnur svo sem swing, jass og dixilandtónlist. Að sögn Jóhanns Morávek skólastjóra tónskólans þá eru um 180 nemendur sem stunda nám við skólann þetta árið og við skólann starfa 10 kennarar. Kennsla hefur farið fram í Sindrabæ, Nesjaskóla, Hrollaugsstöðum og Hofgarði. Tónskóli A-Skaft. hefur staðið að 15 tónleikum á ári auk þess sem nemendur hafa komið víðsvegar fram í bænum.

Tónleikarnir í Nýheimum á föstudag verða í um það bil klukkustund og hefjast kl: 17:30 Aðgangur er ókeypis.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica