Menning

Frá æfingu Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu

Tónskóli A-Skaft. með tónleika í Nýheimum - 30.03.2006 Menning

Sunnudaginn 2. apríl verða tónleikar í Nýheimum þar sem lengra komnir nemendur Tónskóla A-Skaft. ætla að spila metnaðafulla dagskrá. Eru þetta fyrri tónleikar af tveimur í þessum anda. Seinni tónleikarnir verða í lok apríl. Meðal annars verða á þessum tónleikum 2 klarinettuleikarar sem spila sinn hvorn kaflann úr klarinettkonsert eftir Dimler við undirleik lítillar hljómsveitar undir stjórn Philips Maguire. Einnig koma fram píanóleikarar og klassískur gítarleikur. Að lokum spilar léttsveit úr skólanum undir stjórn Gunnlaugs Þrastar, ýmsar tónlistarstefnur s.s. swing, jass og dixilandtónlist. Tónleikarnir verða í um það bil klukkustund og eru allir velkomnir. Lesa meira
 
Bergþór, Þorgeir og Raggi Bjarna

Glúntasöngvar á leið til Hafnar - 24.03.2006 Menning

Í byrjun apríl, nánar tiltekið miðvikudaginn 5. verður tónlistarviðburður í Nýheimum sem enginn tónlistarunnandi ætti að láta fram hjá sér fara. Þá mæta þeir félagar, Bergþór Pálsson og Ólafur Kjartan Sigurðarson á staðinn til að syngja svokallaða Glúntasöngva. Þetta eru bráðskemmtilegir söngvar og eru þeir félagar með píanósnillinginn Jónas Ingimundarsson með sér til að sjá um undirleikinn. |Bergþór Pálsson var hér síðast ásamt þeim Ragga Bjarna og Þorgeiri Ástvaldssyni síðasta sumar , Ólafur Kjartan söng einsöng með Karlakórnum Jökli s.l. vor og Jónas Ingimundarsson hélt frábæra einleikstónleika Nýheimum í síðasta mánuði.| Lesa meira
 
Frá Jöklasýningu

Fengu sent aðgangskort að Jöklasýningunni - 21.03.2006 Menning

Jöklasýningunni á Hornafirði og gildir kortið á sýninguna fyrir handhafa þess. Þetta er liður í kynningarátakinu að íbúum sveitarfélags sautján ára og eldri er send þessi kort. Viðtökur sýningarinnar hafa verið afar góðar og jókst fjöldi gesta úr rúmlega fjögur þúsund árið 2004 í rúmlega sjö þúsund árið 2005. Guðrún Jónsdóttir menningar- og upplýsingafulltrúi segir það mikið gleðiefni að heimamenn hafa tekið sýningunni opnum örmum og jákvætt viðhorf þeirra gagnvart sýningunni sé mikilvægt ef vel á að takast. Þegar tekin var ákvörðun um endurbætur sýningarinnar lá ljóst fyrir að markmiðið var að sýningin yrði sjálfbær innan þriggja ára og til þess að svo megi verða þurfa minnst 15.000 gestir að greiða aðgang á ári. Það skiptir því miklu að kynna sýninguna sem víðast og það skiptir líka miklu máli að íbúar sveitarfélagsins taki þátt í því og hvetji gesti og gangandi til að skoða sýninguna. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica