Norðurljósablús á Hornafirði
Fréttatilkynning
Sænska hljómsveitin Emil & the Ecstatics verður aðalgestur blúshátíðarinnar Norðurljósablús sem haldin verður á Hornafirði um næstu helgi. Auk sænsku blúsaranna munu margir af helstu blústónlistarmenn landsins koma fram á hátíðinni. Þar skal fyrst nefna Blúskompaníð undir forystu Magnúsar Eiríkssonar og KK mun einnig leika á hátíðinni. Einnig munu hljómsveitirnar Mood, Kentár Vax og Síðasti sjens koma fram á hátíðinni og Hornfirðingurinn Sæmi Harðar mun leiða blúsdjamm í Nýheimum. Þar eru allir velkomnir að koma og hlusta og fá að taka í hljóðfæri. Blúsað á þremur stöðum samtímis, KK mun opna hátíðina með tónleikum á Hótel Höfn á fimmtudagskvöldinu. Á föstudag og laugardag verður blúsdjamm með Sæma Harðar í Nýheimum en tónleikar hátíðarinnar fara fram á veitingahúsunum á Höfn. Aðaltónleikarnir á föstudagskvöld eru með Blúskompaníinu á Víkinni en Emil & the Ecstatics leika á aðaltónleikunum á laugardagskvöld á Hótel Höfn.
Eftir aðaltónleikana hvort kvöld verður byrjað að blúsa á þremur stöðum í bænum og geta gestir gengið á milli og staldrað við eftir því sem þá lystir á hverjum stað. Veitingahúsin eru öll við Víkurbrautina á Höfn sem verður sannkallað Blues Avinue um helgina. Liðsmenn Emil & the Ecstatics eru kornungir en tónlist þeirra á sér djúpar rætur og blúsáhugamenn þekkja áhrif frá BB King og fleiri kunnum blúshetjum. Emil Arvidsson söngvari og gítarleikari hefur vakið athygli fyrir hráan og einlægan söng og gítarleik. Hann starfaði áður í The Young Guns sem gerði tvær plötur og lék á 350 tónleikum í Skandinavíu og Evrópu. Að baki Emils í the Ecstatics er firnaþétt sveit með Johan Bendrik Hammondleikara fremstan í flokki og þeir sem séð hafa til hans lofa hrolli niður eftir bakinu þegar hann tekur Hammondinn til kostana og snýr Lesley boxinu af stað. Sveitina skipa einnig Mats Hammarlöf bassaleikari og Tom Steffensen trommuleikari.
Sænsku blúsararnir spila einnig í Nýheimum á sunnudag og eru tónleikarnir opnir öllum aldurshópum. Grunnskólabörn á Höfn fá einnig sinn skerf af blúsnum því KK mun heimsækja alla skólana á Höfn á föstudaginn leika og syngja fyrir börnin.



