Menning

Norðurljósablús

Norðurljósablús á Hornafirði - 28.02.2006 Menning

Sænska hljómsveitin Emil & the Ecstatics verður aðalgestur blúshátíðarinnar Norðurljósablús sem haldin verður á Hornafirði um næstu helgi. Auk sænsku blúsaranna munu margir af helstu blústónlistarmenn landsins koma fram á hátíðinni. Þar skal fyrst nefna Blúskompaníð undir forystu Magnúsar Eiríkssonar og KK mun einnig leika á hátíðinni. Einnig munu hljómsveitirnar Mood, Kentár Vax og Síðasti sjens koma fram á hátíðinni og Hornfirðingurinn Sæmi Harðar mun leiða blúsdjamm í Nýheimum. Þar eru allir velkomnir að koma og hlusta og fá að taka í hljóðfæri. Blúsað á þremur stöðum samtímis, KK mun opna hátíðina með tónleikum á Hótel Höfn á fimmtudagskvöldinu. Á föstudag og laugardag verður blúsdjamm með Sæma Harðar í Nýheimum en tónleikar hátíðarinnar fara fram á veitingahúsunum á Höfn. Aðaltónleikarnir á föstudagskvöld eru með Blúskompaníinu á Víkinni en Emil & the Ecstatics leika á aðaltónleikunum á laugardagskvöld á Hótel Höfn. Lesa meira
 
Jónas Ingimundarson

Jónas Ingimundarson píanóleikari í Nýheimum - 21.02.2006 Menning

Sunnudaginn 26. febrúar n.k. heldur Jónas Ingimundarson einleikstónleika í Nýheimum. Efnisskráin er fjölbreytt, Mozart, Schumann og Bhrams svo eitthvað sé nefnt. Þetta eru tímamót í spilamennsku Jónasar Ingimundarsonar, en 40 ár eru liðin frá því að fór að koma fram sem einleikari. Jónas vígði konsertflygilinn í Nýheimum, og er því nokkur eftirvænting að fá að hlýða á þá vini taka lagið. Jónas Ingimundarson stundaði tónlistarnám við Tónlistarskólann í Reykjavík og framhaldsnám við Tónlistarháskólann í Vínarborg. Jónas hefur síðan starfað sem píanóleikari, tónlistarkennari og kórstjóri. Hann hefur haldið fjölda tónleika á Íslandi og komið fram víða í Evrópu og Bandaríkjunum, ýmist einn eða með öðrum, einkum söngvurum. Jónas hefur leikið inn á fjölda hljómplatna og hljómdiska og hefur staðið fyrir öflugu tónlistarkynningarstarfi í tengslum við tónleikahald sitt. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica