Tíu aðilar eru tilnefndir til menningarverðlauna
Á fundi Menningarmálanefndar 11. janúar s.l. voru lagðar fram tilnefningar til menningarverðlauna fyrir árið 2005. Eftirtaldir hlutu tilnefningar að þessu sinni: Tilnefnd voru: Kristín Jóhannesdóttir kórstjóri fyrir sönglegt uppeldisstarf með börnum, Nemendur í FAS fyrir UNICEF tónleikana og þátttöku í Súperstar, Sigurður Björnsson vegna ritaðs máls bæði birt og óbirt um heimasveit hans Öræfin, Austur-Skaftafellssýslu svo og annað og framlag hans til héraðsritsins Skaftfellings, Inga Jónsdóttir fyrir starf að menningarmálum og sérstaklega fyrir eftirfylgni og stórhug við uppbyggingu Jöklasýningar, Leikhópurinn Lopi fyrir starf með ungu fólki, Bútasaumsfélagið Ræmurnar vegna bútasaumssýningar í Pakkhúsinu síðastliðið sumar, Árni Stefánsson fyrir að standa fyrir margháttuðum menningarviðburðum á Hornafirði í rúmlega hálfa öld og þátttöku í nefndum, ráðum og félagasamtökum á staðnum, Magnús J. Magnússon fyrir starf með unglingum, Kristín G. Gestsdóttir fyrir starf á sviði menningar og lista á Hornafirði og að lokum Hornfirska skemmtifélagið fyrir að standa fyrir menningarviðburðum sem vakið hafa landsathygli.
Menningarmálanefnd ákvað að veita eftirtöldum styrki:
- Karlakórinn Jökull 200 þús.
- Kvennakór Hornafjarðar 200 þús.
- Samkór Hornafjarðar 50 þús.
- Leikfélag Hornafjarðar 150 þús.
- Leikhópurinn Lopi 50 þús.
- Magnús J. Magnússon 25 þús.
- Harmónikufélagið 50 þús.
- Fornleifafélag Öræfinga 200 þús.
- Hulda Þráinsdóttir 150 þús.
- Afþreyingarþátturinn Mastrið 50 þús.
- Listvinasjóður Hornafjarðar 200 þús.
- Gospelnámskeið 25 þús.
- Bútasaumsfélagið ræmurnar 50 þús.
- Lúðrasveit Hornafjarðar 100 þús.
Fimmtudaginn 2. febrúar n.k. kl. 17 í Nýheimum verða styrkirnir afhentir og þá kemur einnig í ljós hverjir hljóta menningar- og umhverfisverðlaun Hornafjarðar


