Menning
Frá Jöklasýningu
Frá Jöklasýningu
Frá Jöklasýningu

23.01.2006

Jöklasýningin opin alla virka daga

Jöklasýningin á Hafnarbraut 30 er nú opin alla virka daga frá kl.13-16. Sýningin verður ekki opin um helgar í vetur en hægt er að óska eftir opnun utan opnunartíma segir Guðrún Jónsdóttir menningar- og upplýsingafulltrúi Hornafjarðar. Sýningin hefur notið mikilla vinsælda enda sérstök og glæsileg í alla staði. Á sýningunni er margvísleg fræðsla um náttúruna hér á svæði jökla og jökulvatna. Jöklasýningin er ekki síður fyrir börnin því þar eru m.a. uppstoppaðir refir, hreindýr o.fl. ásamt íshellinum vinsæla, jökulsprungu og margt fleira skemmtilegt er þar sem höfðar til krakkanna. Guðrún segir að ýmislegt sé á döfinni framundan í safninu t.d. stendur til að minnast þess að fyrir 60 árum fór sænsk-íslenskur leiðangur upp á Vatnajökul, en frá því verður hér nánar greint síðar. Einnig er fyrirhugað hér málþing um handverk og mun það án efa vera mörgum áhugamál.

Undanfarin ár hefur menningarmiðstöðin boðið upp á ýmsar sýningar í söfnum sínum og á Guðrún von á að þar verði ekki breyting á.

www.joklasyning.is


Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica