Menning

Nálhús

Sýningin Auður Austurlands í húsnæði Jöklasýningar - 10.01.2006 Menning

Fimmtudaginn 12. janúar n.k. kl. 16.10 munu Handverk og hönnun, Menningarráð Austurlands með stuðningi Þróunarfélags Austurlands og Markaðsstofu Austurlands opna sýninguna „Auður Austurlands" í húsnæði Jöklasýningarinnar. Á sýningunni verða fjölbreyttir munir unnir úr hráefni sem tengist Austurlandi þ. e. hreindýraskinni, hreindýrshorni og beini, lerki og líparíti. Sýndir verða munir frá tuttugu og sex aðilum. Sýnendur eru: Álfasteinn, Ásta Sigfúsdóttir, Dröfn Guðmundsdóttir, Dýrfinna Torfadóttir, George Hollanders, Guðmundur Magnússon, Guðmundur Sigurðsson, Guðný Hafsteinsdóttir, Guðrún Steingrímsdóttir, Fjölnir Björn Hlynsson, Hólmfríður Ófeigsdóttir, Jórunn Dóra Sigurjónsdóttir, Kristbjörg Guðmundsdóttir, Lára Gunnarsdóttir, Listiðjan Eik, Ólavía Sigmarsdóttir, Páll Kristjánsson, Philippe Ricart, Reynir Sveinsson, Rita Freyja Bach, Signý Ormarsdóttir, Sigurður Már Helgason, Úlfar Sveinbjörnsson, Þórey S. Jónsdóttir, Þórhallur Árnason og Þórólfur Antonsson. Lesa meira
 
Eyrarrosin 2006

Jöklasýningin tilnefnd til Eyrarrósarinnar 2006 - 10.01.2006 Menning

Jöklasýningin var valin sem ein tilnefning af þremur til Eyrarrósarinnar 2006 sem er veitt fyrir framúrskarandi menningarstarf á landsbyggðinni. Eyrarrósin verður afhent á Bessastöðum föstudaginn 13. janúar n.k. og er það í annað sinn sem viðurkenningin er veitt. Verðlaunin veitir Dorrit Moussaieff forsetafrú, sem jafnframt er verndari Eyrarrósarinnar. Auk Jöklasýningar eru Kórastefna við Mývatn, LungA – listahátíð ungs fólks, Austurlandi tilnefnd. Markmiðið með Eyrarrósinni er að stuðla að auknu menningarlífi á landsbyggðinni, auka kynningarmöguleika einstakra sveitarfélaga og landshluta og skapa sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu. Eyrarrósin er veitt einu afburða menningarverkefni á starfssvæði Byggðarstofnunar. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica