Menning
Frá afhendingu menningar- og umhverfisverðlauna
Frá afhendingu menningar- og umhverfisverðlauna
Frá afhendingu Menningar- og umhverfisverðlauna fyrir árið 2004 (úr myndasafni)

02.01.2006

Auglýst eftir tilnefningum til Menningarverðlauna 2005

Menningarmálanefnd Hornafjarðar auglýsir nú eftir tilnefningum til Menningarverðlauna Hornafjarðar fyrir árið 2005. Í reglum um verðlaunin segir: Verðlaunin eru veitt einstaklingi, stofnun eða samtökum sem viðurkenning fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar á nýliðnu ári. Hlutverk verðlaunanna er einnig að vera almenn hvatning til eflingar menningar- og listastarfs í sveitarfélaginu. Á síðasta ári var það Gísli Sverrir Árnason sem hlaut Menningarverðlaunin 2005 fyrir öflugt og farsælt starf við uppbyggingu Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og uppbyggingu menningarmála á Austurlandi og á landinu öllu með formennsku sinni í Menningarráði Austurlands og í stjórn Safnaráðs.

Tilnefningar fyrir árið 2005 ásamt stuttum rökstuðningi þarf að senda fyrir fimmtudaginn 5. janúar n.k. á:
Guðrún Jónsdóttir,
Menningarmiðstöð Hornafjarðar,
Nýheimum,
780 Höfn

eða á netfang: gunna@hornafjordur.is




Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica