Menning

Frá afhendingu menningar- og umhverfisverðlauna

Tíu aðilar eru tilnefndir til menningarverðlauna - 30.01.2006 Menning

Á fundi Menningarmálanefndar 11. janúar s.l. voru lagðar fram tilnefningar til menningarverðlauna fyrir árið 2005. Eftirtaldir hlutu tilnefningar að þessu sinni: Tilnefnd voru: Kristín Jóhannesdóttir kórstjóri fyrir sönglegt uppeldisstarf með börnum, Nemendur í FAS fyrir UNICEF tónleikana og þátttöku í Súperstar, Sigurður Björnsson vegna ritaðs máls bæði birt og óbirt um heimasveit hans Öræfin, Austur-Skaftafellssýslu svo og annað og framlag hans til héraðsritsins Skaftfellings, Inga Jónsdóttir fyrir starf að menningarmálum og sérstaklega fyrir eftirfylgni og stórhug við uppbyggingu Jöklasýningar, Leikhópurinn Lopi fyrir starf með ungu fólki, Bútasaumsfélagið Ræmurnar vegna bútasaumssýningar í Pakkhúsinu síðastliðið sumar, Árni Stefánsson fyrir að standa fyrir margháttuðum menningarviðburðum á Hornafirði í rúmlega hálfa öld og þátttöku í nefndum, ráðum og félagasamtökum á staðnum, Magnús J. Magnússon fyrir starf með unglingum, Kristín G. Gestsdóttir fyrir starf á sviði menningar og lista á Hornafirði og að lokum Hornfirska skemmtifélagið fyrir að standa fyrir menningarviðburðum sem vakið hafa landsathygli. Lesa meira
 
Frá Jöklasýningu

Jöklasýningin opin alla virka daga - 23.01.2006 Menning

Jöklasýningin á Hafnarbraut 30 er nú opin alla virka daga frá kl.13-16. Sýningin verður ekki opin um helgar í vetur en hægt er að óska eftir opnun utan opnunartíma segir Guðrún Jónsdóttir menningar- og upplýsingafulltrúi Hornafjarðar. Sýningin hefur notið mikilla vinsælda enda sérstök og glæsileg í alla staði. Á sýningunni er margvísleg fræðsla um náttúruna hér á svæði jökla og jökulvatna. Jöklasýningin er ekki síður fyrir börnin því þar eru m.a. uppstoppaðir refir, hreindýr o.fl. ásamt íshellinum vinsæla, jökulsprungu og margt fleira skemmtilegt er þar sem höfðar til krakkanna. Guðrún segir að ýmislegt sé á döfinni framundan í safninu t.d. stendur til að minnast þess að fyrir 60 árum fór sænsk-íslenskur leiðangur upp á Vatnajökul, en frá því verður hér nánar greint síðar. Einnig er fyrirhugað hér málþing um handverk og mun það án efa vera mörgum áhugamál. Lesa meira
 
Auður Austurlands

Góð aðsókn á Auður Austurlands - 16.01.2006 Menning

Sýningin Auður Austurlands, sem er sýning á handverki og listiðnaði úr austfirsku hráefni var opnuð í húsnæði Jöklasýningarinnar á Höfn 12. janúar og er opin til 18. jan. Fjöldi muna á sýningunni er 71 samkvæmt sýningaskrá, flestir eru gripirnir unnir úr hreindýrs horni, hreindýrs skinni, hrosshári og lerki. Eini Hornfirðingurinn sem tók þátt í sýningunni er handverksmaðurinn Ragnar Arason sem er með renndar undirskálar úr lerki, notaðar undir expresso og capucino leirbolla. Lesa meira
 
Nálhús

Sýningin Auður Austurlands í húsnæði Jöklasýningar - 10.01.2006 Menning

Fimmtudaginn 12. janúar n.k. kl. 16.10 munu Handverk og hönnun, Menningarráð Austurlands með stuðningi Þróunarfélags Austurlands og Markaðsstofu Austurlands opna sýninguna „Auður Austurlands" í húsnæði Jöklasýningarinnar. Á sýningunni verða fjölbreyttir munir unnir úr hráefni sem tengist Austurlandi þ. e. hreindýraskinni, hreindýrshorni og beini, lerki og líparíti. Sýndir verða munir frá tuttugu og sex aðilum. Sýnendur eru: Álfasteinn, Ásta Sigfúsdóttir, Dröfn Guðmundsdóttir, Dýrfinna Torfadóttir, George Hollanders, Guðmundur Magnússon, Guðmundur Sigurðsson, Guðný Hafsteinsdóttir, Guðrún Steingrímsdóttir, Fjölnir Björn Hlynsson, Hólmfríður Ófeigsdóttir, Jórunn Dóra Sigurjónsdóttir, Kristbjörg Guðmundsdóttir, Lára Gunnarsdóttir, Listiðjan Eik, Ólavía Sigmarsdóttir, Páll Kristjánsson, Philippe Ricart, Reynir Sveinsson, Rita Freyja Bach, Signý Ormarsdóttir, Sigurður Már Helgason, Úlfar Sveinbjörnsson, Þórey S. Jónsdóttir, Þórhallur Árnason og Þórólfur Antonsson. Lesa meira
 
Eyrarrosin 2006

Jöklasýningin tilnefnd til Eyrarrósarinnar 2006 - 10.01.2006 Menning

Jöklasýningin var valin sem ein tilnefning af þremur til Eyrarrósarinnar 2006 sem er veitt fyrir framúrskarandi menningarstarf á landsbyggðinni. Eyrarrósin verður afhent á Bessastöðum föstudaginn 13. janúar n.k. og er það í annað sinn sem viðurkenningin er veitt. Verðlaunin veitir Dorrit Moussaieff forsetafrú, sem jafnframt er verndari Eyrarrósarinnar. Auk Jöklasýningar eru Kórastefna við Mývatn, LungA – listahátíð ungs fólks, Austurlandi tilnefnd. Markmiðið með Eyrarrósinni er að stuðla að auknu menningarlífi á landsbyggðinni, auka kynningarmöguleika einstakra sveitarfélaga og landshluta og skapa sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu. Eyrarrósin er veitt einu afburða menningarverkefni á starfssvæði Byggðarstofnunar. Lesa meira
 
Frá afhendingu menningar- og umhverfisverðlauna

Auglýst eftir tilnefningum til Menningarverðlauna 2005 - 02.01.2006 Menning

Menningarmálanefnd Hornafjarðar auglýsir nú eftir tilnefningum til Menningarverðlauna Hornafjarðar fyrir árið 2005. Í reglum um verðlaunin segir: Verðlaunin eru veitt einstaklingi, stofnun eða samtökum sem viðurkenning fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar á nýliðnu ári. Hlutverk verðlaunanna er einnig að vera almenn hvatning til eflingar menningar- og listastarfs í sveitarfélaginu. Á síðasta ári var það Gísli Sverrir Árnason sem hlaut Menningarverðlaunin 2005 fyrir öflugt og farsælt starf við uppbyggingu Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og uppbyggingu menningarmála á Austurlandi og á landinu öllu með formennsku sinni í Menningarráði Austurlands og í stjórn Safnaráðs. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica