Menning
Pakkhúsið séð frá bryggju
Pakkhúsið séð frá bryggju

06.12.2005

Bókmenntakvöld í Pakkhúsinu

Árlegt jóla-bókmenntakvöld í Pakkhúsinu

Hin árlega bókmenntasamkoma í desember á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar verður í Pakkhúsinu fimmtudaginn 8. desember nk. kl. 20:00. Aðgangur er ókeypis þökk sé Listvinasjóði og velvilja hornfirskra fyrirtækja
Þeir rithöfundar sem heimsækja okkur nú eru:

  • Gerður Kristný sem les úr bók sinni Myndir af pabba -saga Thelmu
  • Eyrún Ingadóttir les úr bók sinni Ríkey ráðagóða
  • Guðlaugur Arason les úr bók sinni Gamla góða Kaupmannahöfn
  • Jón Hallur Stefánsson les úr bók sinni Krosstré
  • Rúnar Helgi Vignisson og les úr bók sinni Feigðarflan
  • Sigurður Örn Hannesson les úr Skaftfellingi

Nokkrir nemendur Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu munu flytja tónlist á milli upplestra.

Sjáumst sem flest í Pakkhúsinu á fimmtudag og eigum notalega kvöldstund í skammdeginu.

Menningarmiðstöð Hornafjarðar

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica