Menning

Jólasveinar heimsækja Gömlubúð

Jólasveinar heimsækja Gömlubúð - 19.12.2005 Menning

Það var uppi fótur og fit þegar jólasveinar birtust við Gömlubúð í gær á leið sinni frá fjöllunum. Það er orðinn árviss viðburður að jólasveinarnir koma við í Gömlubúð og biðu krakkarnir þar eftir komu þeirra og þegar þeir birtust á bakvið hól þá hlupu nokkrir krakkar á móti þeim . Jólasveinarnir léku, sungu og trölluðu með krökkunum. Þeir skoðuðu líka gamla dótið sem þeir sáu á safninu. Gluggagægir sagði að hann væri mjög hrifinn af gluggunum í Gömlubúð enda búinn að kíkja í gegnum þá í mörg mörg ár á leið sinni til byggða. Um 70-80 mans heimsóttu Gömlubúð í gær til að taka á móti jólasveinunum. Lesa meira
 
Pakkhúsið séð frá bryggju

Bókmenntakvöld í Pakkhúsinu - 06.12.2005 Menning

Hin árlega bókmenntasamkoma í desember á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar verður í Pakkhúsinu fimmtudaginn 8. desember nk. kl. 20:00. Aðgangur er ókeypis þökk sé Listvinasjóði og velvilja hornfirskra fyrirtækja. Þeir rithöfundar sem heimsækja okkur nú eru: Gerður Kristný sem les úr bók sinni Myndir af pabba – saga Thelmu, Eyrún Ingadóttir les úr bók sinni Ríkey ráðagóða, Guðlaugur Arason les úr bók sinni Gamla góða Kaupmannahöfn, Jón Hallur Stefánsson les úr bók sinni Krosstré, Rúnar Helgi Vignisson og les úr bók sinni Feigðarflan og Sigurður Örn Hannesson les úr Skaftfellingi. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica