Menning
4_hent
4_hent
Jón Sigurðsson og Þórarinn Stefánsson

11.10.2005

Píanó 4-hent - Tónleikar í Nýheimum

Sunnudaginn 23.október verða haldnir tónleikar í Nýheimum á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Þar munu píanóleikararnir Þórarinn Stefánsson og Jón Sigurðsson leika 4-hent á píanó verk eftir Debussy, Barber, Poulenc og Schubert. Flutningur á píanó 4-hent er ekki algengur hérlendis og vill því svo til að þetta er hérlendur frumflutningur á danssvítu Barbers, Souvenirs op.28. Verk frönsku tónskáldanna Debussy og Poulenc eru eins ólík og hægt er en hafa fest sig í sessi sem ein vinsælustu verkin í 4-hent flokknum. Eftir Schubert eru til mörg 4-hent verk af öllum stærðum og gerðum en þykir mörgum Fantasía op. 103 eitt albesta verk hans að öllu leyti. Vinsældir píanósins urðu mjög miklar strax og það var kynnt til sögunnar um 1700. Á tæpum 100 árum komu ýmsir spennandi eiginleikar hljóðfærisins fram.

Þótti 4-hentur flutningur á píanó gefa mikla möguleika í kennslu og eins þótti 4-hent spil gefa rétta umgjörð ýmsum umritunum á sinfóníum og kammertónlist. Mikil eftirspurn var eftir stofutónlist hvers konar, tónlist sem hægt var að leika sér til ánægju og skemmtunar og helst án mikillar fyrirhafnar. Þessari eftirspurn önnuðu tónskáldin með því að semja og umrita verk fyrir þessa hljóðfæraskipan. Nærri öll þekktustu og mestu tónskáld sögunnar lögðu þarna sinn skerf að mörkum og fyrir vikið er nú til mjög mikið af 4-hentri píanótónlist.
Jón Sigurðsson og Þórarinn Stefánsson stunduðu báðir nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og síðar framhaldsnám í Þýskalandi. Þeir hafa komið fram víða með ýmsum tónlistarmönnum.
Þessir tónleikar eru samstarfsverkefni Félags íslenskra tónlistarmanna og Menningarmiðstöðvar og Menningarmálanefndar Hornafjarðar með styrk frá Menntamálaráðuneytinu.
Tónleikarnir hefjast kl. kl. 20:00 og er verð aðgöngumiða kr. 1.000.- en frítt fyrir nemendur Tónskólans

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica