Sýningar og söfn vel sótt í sumar
Hin nýja og endurbætta jöklasýning á Höfn hefur verið opin í tvo mánuði. Aðsókn á sýninguna í júní og júlí hefur verið frábær en aukning frá því á sama tíma í fyrra er um 50%. Þá eru ekki teknir með þeir 850 gestir sem heimsóttu sýninga um opnunarhelgina. Sýningin hefur mælst vel fyrir bæði hjá innlendum og erlendum gestum. Margt vekur athygli t.d. hið stórfenglega útsýni af þaki hússins, íshellirinn, margmiðlun, sjónvarpsefni, fræðatexti, uppstoppuð dýr, jöklamýs og ísinn úr Jökulsárlóni svo dæmi séu tekin.
Margt vekur athygli hjá gestum t.d. margmiðlunin sem gerir sýninguna nútímalega, þó að einn hafi nú haft að orði að þetta væri nú aðeins of mikil tækni fyrir sinn smekk. Fólk mjög ánægt með það að komast upp á þak að skoða stórfenglegt útsýnið ásamt því að fara inn í íshellirinn. Ísinn frá Jökulsárlóni vekur jafnan mikla athygli, eins jöklamýsnar sem fengnar voru á leynistað við jökulröndina.
Aðsókn í Gömlubúð hefur einnig verið með besta móti og allt stefnir í metár. Sýningargestir eru ánægðir með fjölbreytnina í Gömlubúð þar sem hægt er að finna minjar frá gamalli tíð, ríkulegt náttúrugripa og fuglasafn, búvélasafn og fleira.
Að lokum er vert að benda á að hjá Handraðanum í Pakkhúsinu stefnir einnig í gott sumar. Töluvert meira er um hópa nú en í fyrra sumar. Handraðinn er opin frá 13-18 alla daga í sumar.



