Menning

Jöklasýning

Sýningar og söfn vel sótt í sumar - 10.08.2005 Menning

Hin nýja og endurbætta jöklasýning á Höfn hefur verið opin í tvo mánuði. Aðsókn á sýninguna í júní og júlí hefur verið frábær en aukning frá því á sama tíma í fyrra er um 50%. Þá eru ekki teknir með þeir 850 gestir sem heimsóttu sýninga um opnunarhelgina. Sýningin hefur mælst vel fyrir bæði hjá innlendum og erlendum gestum. Margt vekur athygli t.d. hið stórfenglega útsýni af þaki hússins, íshellirinn, margmiðlun, sjónvarpsefni, fræðatexti, uppstoppuð dýr, jöklamýs og ísinn úr Jökulsárlóni svo dæmi séu tekin. Lesa meira
 
Dauði og jarðarber í Nýheimum

Dauði og jarðarber í Nýheimum - 08.08.2005 Menning

Grínharmleikurinn Dauði og jarðarber verður sýndur í Nýheimum föstudaginn 19. ágúst. Leikurinn fjallar um tvo sígaunabræður sem búið hafa hjá ömmu sinni alla ævi. Bræðurnir komast að því sér til mikillar skelfingar á afmælisdag ömmunar að hún hefur geyspað golunni. Hæfileikar bræðranna hafa verið bældir niður af krafti af ömmu gömlu og hún staðið í vegi fyrir því að þeir geti látið drauma sína rætast. En nú er hún gamla amma dauð og bræðurnir þurfa ekki að búa á bænum lengur. Spurning um hvað tekur við? Á að halda búskap áfram að hætti ömmunar eða láta ferðaeðlið taka yfirhöndina og láta drauma sína rætast. Bræðrunum eru allir vegir færir eða hvað? Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica