Menning

Hera Hjartardóttir var meðal þeirra sem skemmti í Nýheimum

Hera á tónlekum á Hótel Höfn - 27.07.2005 Menning

Hera Hjartardóttir heldur tónleika á Hótel Höfn miðvikudagskvöldið 28. júlí. Tónleikarnir á Hótel Höfn eru hluti af tónleikaferðalagi hennar um landið. Hera var fulltrúi Íslands í vegavinnutónleikunum sem haldnir voru í Nýheimum í mars s.l. þar sem hún vakti mikla lukku fyrir frábæran söng og aðlagandi framkomu. Í viðtali við hornafjord.is var hún spurð að því hvenær tónlistaráhuginnhafi byrjað og svaraði hún því að hún hafði byrjað að spila á gítar þegar hún var átta ára gömul og byrjað í klassík í tónlistarskólanum áður en hún flutti erlendis. Lesa meira
 
Sandur

Sandur - 27.07.2005 Menning

Föstudaginn 29. júlí, kl.17 opnar Sigurður Mar Halldórsson ljósmyndasýningu í landi Horns í Hornafirði. Sýningin verður á sandinum við Stokksnesveg og nefnist einfaldlega Sandur. Myndirnar voru teknar á svipuðum slóðum síðasta sumar og verður komið fyrir á sandinum. Þær falla því inn í umhverfið og skera sig úr í senn. Sýningasalurinn er einstakur í sinni röð, rennisléttur og svartur sandurinn er gólfið, jöklar á aðra hönd og sæbrött fjöllin á hina og úthafsaldan leikur endalausa sinfóníu undir. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica