Menning
Bergþór, Þorgeir og Raggi Bjarna
Bergþór, Þorgeir og Raggi Bjarna
Hér er Bergþór Páls ásamt þeim Þorgeiri Ástvaldssyni og Raggi Bjarna (úr myndasafni)

22.07.2005

Raggi Bjarna, Bergþór Páls og Þorgeir Ástvalds í Nýheimum

Laugardaginn 23. júlí næstkomandi verða tónleikar í Nýheimum. Það eru þeir Ragnar Bjarnason og Bergþór Pálsson sem munu syngja og skemmta ásamt Þorgeiri Ástvaldssyni undirleikara. Þeir félagar halda ekki aðeins tónleika hér á Hornafirði því þeir verða einnig með tónleika á hátíðinni Franskir dagar á Fáskrúðsfirði sem haldin er nú um helgina. Þar eru þeir hluti af árlegri söngskemmtun sem er haldin í kvöld. Ragnar Bjarnason og Bergþór Pálsson hafa verið meðal ástsælustu söngvurum þjóðarinnar til fjölda ára og ætti því enginn að vera svikinn af þessum tónleikum.

Á efnisskránni hjá þeim eru lög sem flestir ættu að þekkja og hafa lengi hljómað í útvarpinu ásamt frönskum lögum.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20:30.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica