Þverfaglegt verkefni milli náttúruljósmynda og djasstónlistar
Þann 25. júlí nk. koma Dorthe Højland og hljómsveit til Hornafjarðar og halda hljómleika í Nýheimum. Hljómleikarnir sem bera heitið Spces & Places, eru eins og segir í kynningu þeirra, þverfalegt verkefni milli náttúruljósmynda og djasstónlistar þar sem að sýndar verða á hljómleikunum slides-myndir frá Íslandi og af íslenskri náttúru. Dorthe Højland hópurinn saman stendur af, Jacop Højland sem leikur á píanó og hljómborð, Andreas Dreier á kontrabassa, Sören Olsen á trommur og Dorthe Højland á sopran- og altsaxofon. Myndirnar sem sýndar verða tók sænski ljósmyndarinn og jarðfræðingurinn Fredrik Holm sem búsettur er í Reykjavík en tónlistina samdi Dorthe Højland. Síðast liðið sumar fóru Dorthe Höjland og félagar ásamt Fredrik Holm á tveim fjallabílum í fimm daga ferð um hálendi Íslands og hafði þessi ferð um fjölbreitt landslag, fjöllin, litadýrðin í náttúrunni og margbreytileg veðrátta mikil áhrif á Dorthe Højland og varð honum innblástur að þessum tónleikum.
Auk tónleikanna í Nýheimum þann 25. júlí verða Dorthe Højland og félagar með tónleika á Akureyri 22. júlí, á Neskaupsstað 24. júlí og í Norræna Húsinu í Reykjavík 28. júlí.



