Menning
Smidur_1
Smidur_1
Smiður

01.07.2005

Ljósmyndasýning í Pakkhúsinu

Í dag opnaði Sigurður Mar Halldórsson ljósmyndasýningu í Pakkhúsinu á Höfn í Hornafirði. Sýningin nefnist Hornfirðingar og eins og nafnið gefur til kynna, eru það bæjarbúar á Höfn sem eru í aðalhlutverki á myndunum. Myndirnar sýna fólk sem vinnur ólík störf í samfélaginu, m.a. trillukarl, kennara, fiskverkakonu, bankagjaldkera, meinatækni, trésmið og lóðs. Sýningin er á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og í tengslum við Humarhátíð á Höfn. Menningarráð Austurlands styrkir sýninguna.

Þetta er fjórða einkasýning Sigurðar Mar en hann hefur einnig tekið þátt í nokkrum samsýningum, bæði hérlendis og í Svíþjóð. Sýningin Hornfirðingar var opnuð kl. 12 í dag, föstudaginn 1. júlí með því að skálað var í humarsúpu. Sýningin verður opin daglega til 9. júlí nk.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica