Menning
Rústaskoðun á Horni
Rústaskoðun á Horni
Rústaskoðun á Horni á vegum Menningarmiðstöðvar (úr myndasafni) @MMH

29.06.2005

Mikið um að vera á vegum Menningarmiðstöðvar

Frábær aðsókn hefur verið í þjónustu Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar í júnímánuði en aðsóknartölur sýna að yfir 3500 manns hafa sótt Gömlubúð, Upplýsingamiðstöð, Handraðann í Pakkhúsi og Jöklasýninguna ÍS-land. Þá hefur barnastarf menningarmiðstöðvarinnar byrjað vel í sumar og aðsókn í fyrstu ferðirnar verið mjög góð. Enn eru sex ferðir eftir og síðasta ferðin sem er óvissuferð verður farin 9. ágúst. Ný og endurbætt Jöklasýning hefur farið vel af stað og er almennt er mikil ánægja með sýninguna jafnt hjá ferðamönnum sem og heimamönnum. Sýningin hefur verið vel sótt frá því hún opnaði þann 3. júní síðastliðinn og hana hafa sótt hátt í 2000 manns. Árskort eru nú í boði á Jöklasýningu sem kosta 1250 krónur.

Jöklasýning er opin frá klukkan 10-22 í júlí. Allt stefnir í að metaðsókn verði í Gömlubúð í júní mánuði og um helgina verður líf og fjör á byggðasafninu. Á sunnudeginum verður hoppkastali fyrir utan Gömlubúð og heyjað verður ef vel viðrar. Gamlabúð er opin frá 13-21 í júlí. Á föstudaginn opnar ljósmyndasýning hjá Sigurði Mar Halldórssyni í Pakkhúsi en auk hans verður Handraðinn með sínar frábæru vörur á boðstólum í Pakkhúsinu alla helgina.
Að lokum má minna á tónleikana Nýheimum á fimmtudagskvöldið með Valgeiri Guðjónssyni sem hefjast 20:30 í Nýheimum. Á tónleikunum verður hægt að kaupa léttar veitingar.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica