Menning
Gudjon,_Agir_og_Oddtor_njota_augnabliksins
Gudjon,_Agir_og_Oddtor_njota_augnabliksins
Drengir í Heppuskóla njota augnabliksins (úr myndasafni Heppuskóla)

24.06.2005

Bæjarráð styrkir ungt fólk til þátttöku á Listahátíð á Seyðisfirði

Bæjarráð Hornafjarðar hefur samþykkt 25 þúsund króna framlag til að styðja unga Hornfirðinga með verkefni til þátttöku í Listahátíð ungs fólks á Seyðisfirði sem haldin verður dagana 11.-16. júlí nk. Dagskráin 2005 verður fjölbreytt að vanda og margar smiðjur af ýmsu tagi opnar með fjölbreytt verkefni. Í fyrsta sinn verður reynt að skipta smiðjunum meira upp þannig að þeir sem hafa komið oftar en einu sinni fái krefjandi verkefni. Lengra-komnir fá því vonandi eitthvað við sitt hæfi eins og þeir sem koma í fyrsta sinn. Fyrir utan listasmiðjur og uppákomur þeim tengdar verður boðið upp á fjölbreytta skemmtidagskrá auk þess sem opin námskeið og kynningar verða til staðar.

Fleiri sveitarfélög á Austurlandi hafa ákveðið að styrkja ungmenni í sínu sveitarfélagi til þátttöku í Listahátíðinni.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica