Myndir Svavars Guðnasonar til sýnis í Landsbankanum
Landsbankinn hefur eignast nokkur af fyrstu myndum Svavars Guðnasonar og hafa þær verið settar upp til sýnis í Landsbankaútibúinu á Hornafirði. Svavar Guðnason var fæddur á Höfn 1909 og þar var hann til ársins 1927 er hann fór til náms í Reykjavík. Hann var byrjaður að mála litlar olíu-og vatnslitamyndir meðan hann var í foreldrahúsum m.a. hluta þeirra mynda sem Landsbankinn á Hornafirði sýnir núna. Á þeim árum þegar Svavar var að alast upp málaði Ásgrímur Jónsson listmálari margar af sínum þekktustu vatnslitamyndum í Austur-Skaftafellssýslu og hafði hann mikil áhrif á Svavar á hans uppvaxtarárum. Í mörgum myndum sem Ásgrímur málaði af Höfn er Hekla, hús Guðna og fjölskyldu hans áberandi kennileiti. Verk Svavars eru víðfræg og er þau að finna í öllum helstu listasöfnum Íslendinga og einnig í níu listasöfnum í Danmörku, söfnum í New York, Hollandi og Suður Ameríku. að ógleymdum fæðingarstað hans, Höfn þar sem margar myndir hans eru sýndar í Menningarmiðstöð Hornafjarðar.
Svavar fullyrti ævinlega að myndlist sín væri sprottin upp úr aðstæðum á heimsslóðum, náttúrunni og sérstökum birtuskilyrðum þar sem leggjast á eitt, himinn, haf og jökulbreiður, að ógleymdu frjóu menningarsamfélaginu í héraðinu.



