Menning
Jöklasýning
Jöklasýning
Frá jöklasýningu
Mynd 1 af 3
1 2 3

06.06.2005

Yfir 1000 manns á frumsýningarhelgi ÍS-lands, jöklasýningar á Höfn.

Halldór Ásgrímsson, opnaði ÍS-land, jöklasýningu á Höfn, við hátíðleg athöfn kl. 15.00 föstudaginn 3. júní. Yfir eitt þúsund manns heimsóttu sýninguna fyrstu sýningarhelgina og viðtökur gestanna frábærar. Jöklasýningin hefur tekið stakkaskiptum og margar spennandi nýjungar verið innleiddar. Á sýningunni er m.a. hægt að sjá uppstoppað hreindýr, heyra ýmiskonar fuglahljóð, ganga inn í jökulsprungu og íshelli, sjá James Bond á Jökulsárlóni, skoða margmiðlunarefni um jökla og njóta óviðjafnanlegs útsýnis af útsýnistað á þaki hússins.

Áætlaðar kostnaður við framkvæmdirnar er um 60 miljónir. Þar af leggur sveitarfélagið til um þriðjung, ríkissjóður til um þriðjung og aðrir fjárhagslegir máttarstólpar sýningarinnar um þriðjung en það eru Landsnet hf., Vegagerðin og VÍS. Auk þess hefur Ferðamálaráð, Háskólasetrið á Hornafirði, Jöklarannsóknarfélag Íslands, Orkustofnun, Jarðvísindastofnun Háskólans, Siglingastofnun, Umhverfisstofnun, Veðurstofan og Vegagerðin lýst yfir vilja sínum að styðja við Jöklasýningu á faglegan hátt.

Aðgangseyrir á sýninguna er kr. 500 og afsláttar verð fyrir hópa og 67 ára og eldri er kr. 400. Börn 14 ára og yngri fá ókeypis aðgang. Innan skamms verða einnig til sölu árskort á hagstæðu verði.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica