Menning

Rústaskoðun á Horni

Mikið um að vera á vegum Menningarmiðstöðvar - 29.06.2005 Menning

Frábær aðsókn hefur verið í þjónustu Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar í júnímánuði en aðsóknartölur sýna að yfir 3500 manns hafa sótt Gömlubúð, Upplýsingamiðstöð, Handraðann í Pakkhúsi og Jöklasýninguna ÍS-land. Þá hefur barnastarf menningarmiðstöðvarinnar byrjað vel í sumar og aðsókn í fyrstu ferðirnar verið mjög góð. Enn eru sex ferðir eftir og síðasta ferðin sem er óvissuferð verður farin 9. ágúst. Ný og endurbætt Jöklasýning hefur farið vel af stað og er almennt er mikil ánægja með sýninguna jafnt hjá ferðamönnum sem og heimamönnum. Sýningin hefur verið vel sótt frá því hún opnaði þann 3. júní síðastliðinn og hana hafa sótt hátt í 2000 manns. Árskort eru nú í boði á Jöklasýningu sem kosta 1250 krónur. Lesa meira
 
Valgeir Guðjónsson

Valgeir Guðjónsson í Nýheimum - 28.06.2005 Menning

Fimmtudaginn 30. júní næstkomandi verða tónleikar með Valgeiri Guðjónssyni og félögum í Nýheimum og eru tónleikarnir hluti af dagskrá Humarhátíðar. Á tónleikunum mun Valgeir flytja brot af því besta af tónlistarferlinum sem spannar farsælt tímabil í íslenskri tónlistarsögu. Tónleikarnir hefjast klukkan 20:30 og miðaverðið er 1.500. Valgeir Guðjónsson þarf vart að kynna en verk hans lifa góðu lífi meðal þjóðarinnar, en söngvaskáldið hefur komið víða við á tónlistarferlinum. Góð textagerð hefur oft þótt aðalmerki Valgeirs en í textum hans má skynja léttleika þar sem oft glittir í háð og lævís skírskot. Valgeir hefur löngum verið kenndur við sveitirnar þjóðþekktu Spilverk Þjóðanna og Stuðmenn og starfaði hann með þeim hljómsveitum um árabil. Ásamt því að semja texta, samdi hann einnig mörg af þekktustu lögum sveitanna. Lesa meira
 
Gudjon,_Agir_og_Oddtor_njota_augnabliksins

Bæjarráð styrkir ungt fólk til þátttöku á Listahátíð á Seyðisfirði - 24.06.2005 Menning

Bæjarráð Hornafjarðar hefur samþykkt 25 þúsund króna framlag til að styðja unga Hornfirðinga með verkefni til þátttöku í Listahátíð ungs fólks á Seyðisfirði sem haldin verður dagana 11.-16. júlí nk. Dagskráin 2005 verður fjölbreytt að vanda og margar smiðjur af ýmsu tagi opnar með fjölbreytt verkefni. Í fyrsta sinn verður reynt að skipta smiðjunum meira upp þannig að þeir sem hafa komið oftar en einu sinni fái krefjandi verkefni. Lengra-komnir fá því vonandi eitthvað við sitt hæfi eins og þeir sem koma í fyrsta sinn. Fyrir utan listasmiðjur og uppákomur þeim tengdar verður boðið upp á fjölbreytta skemmtidagskrá auk þess sem opin námskeið og kynningar verða til staðar. Lesa meira
 
Svavar Guðnason málverk

Myndir Svavars Guðnasonar til sýnis í Landsbankanum - 21.06.2005 Menning

Landsbankinn hefur eignast nokkur af fyrstu myndum Svavars Guðnasonar og hafa þær verið settar upp til sýnis í Landsbankaútibúinu á Hornafirði. Svavar Guðnason var fæddur á Höfn 1909 og þar var hann til ársins 1927 er hann fór til náms í Reykjavík. Hann var byrjaður að mála litlar olíu-og vatnslitamyndir meðan hann var í foreldrahúsum m.a. hluta þeirra mynda sem Landsbankinn á Hornafirði sýnir núna. Á þeim árum þegar Svavar var að alast upp málaði Ásgrímur Jónsson listmálari margar af sínum þekktustu vatnslitamyndum í Austur-Skaftafellssýslu og hafði hann mikil áhrif á Svavar á hans uppvaxtarárum. Í mörgum myndum sem Ásgrímur málaði af Höfn er Hekla,hús Guðna og fjölskyldu hans áberandi kennileiti. Verk Svavars eru víðfræg og er þau að finna í öllum helstu listasöfnum Íslendinga og einnig í níu listasöfnum í Danmörku, söfnum í New York, Hollandi og Suður Ameríku. að ógleymdum fæðingarstað hans, Höfn þar sem margar myndir hans eru sýndar í Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Lesa meira
 
Jöklasýning

Yfir 1000 manns á frumsýningarhelgi ÍS-lands, jöklasýningar á Höfn. - 06.06.2005 Menning

Halldór Ásgrímsson, opnaði ÍS-land, jöklasýningu á Höfn, við hátíðleg athöfn kl. 15.00 föstudaginn 3. júní. Yfir eitt þúsund manns heimsóttu sýninguna fyrstu sýningarhelgina og viðtökur gestanna frábærar. Jöklasýningin hefur tekið stakkaskiptum og margar spennandi nýjungar verið innleiddar. Á sýningunni er m.a. hægt að sjá uppstoppað hreindýr, heyra ýmiskonar fuglahljóð, ganga inn í jökulsprungu og íshelli, sjá James Bond á Jökulsárlóni, skoða margmiðlunarefni um jökla og njóta óviðjafnanlegs útsýnis af útsýnistað á þaki hússins. Lesa meira
 
Jöklasafn

ÍS-land, ný jöklasýning á Höfn. - 02.06.2005 Fréttir

Ný og endurbætt Jöklasýning, ÍS-land, verður opnuð á Höfn í Hornafirði föstudaginn, 3. júní nk. Af því tilefni verður móttaka í Nýheimum á Höfn kl. 14:00. Um klukkustund síðar brýtur Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra ísinn og opnar sýninguna. Laugardaginn 4. júní verður opið hús í ÍS-landi, nýrri jöklasýningu kl. 13-21. Aðgangur er ókeypis þann dag og allir velkomnir. Björn G. Björnsson hannaði sýninguna og innleiddi margar nýjungar og róttækar breytingar á skipulagi hennar. Markmiðið er að gera sýningu á heimsmælikvarða sem dregur sérstöðu Suðausturlands fram á lifandi, fróðlegan og skemmtilegan hátt. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica