Menning
Helga Bryndís Magnúsdóttir
Untitled-2_copy
Helga Bryndís Magnúsdóttir

20.05.2005

Tónleikar í Nýheimum sunnudag

Sunnudaginn 22. maí kl. 16:00 verða tónleikar í Nýheimum. Þeir eru samstarfstónleikar Félags íslenskra tónlistarmanna (FÍT), Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu og Listvinasjóðs Hornafjarðar. Á tónleikunum mun Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanóleikari flytja verk eftir Schumann og Chopin. Tveir nemendur Tónskólans munu einnig koma fram á tónleikunum, þær Þórhildur Rán Torfadóttir sem leikur á flautu og Hrefna Rún Kristinsdóttir sem leikur á tenórsaxafón. Helga Bryndís Magnúsdóttir hóf tónlistarnám í Vestmannaeyjum hjá Guðmundi H. Guðjónssyni. Hún fór síðan í Tónlistarskólann í Reykjavík og naut þar handleiðslu Jónasar Ingimundarsonar og útskrifaðist árið 1987 sem píanókennari og einleikari. Hún stundaði framhaldsnám í Vínarborg og Helsinki. Hún hefur starfað við Tónlistarskólann á Akureyri frá árinu 1992 en einnig verið virk sem píanóleikari, í kammertónlist, með söngvurum og í Caputhópnum. Hún hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Sl. sumar lék Helga Bryndís á flygil í Hafnarkirkju sem ígildi heillar sinfóníuhljómsveitar þegar Óperan Fósturlandsins Freyja var flutt í Hafnarkirkju ásamt söngvurunum Sigrúnu Hjálptýsdóttur, Bergþór Pálssyni og Gunnari Guðbjörnssyni. Aðgangseyrir á tóneikana er kr. 1000.-

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica