Háskólakórinn með tónleika í Nýheimum
Í kvöld, miðvikudaginn 18. maí kl. 20:00 mun Háskólakórinn undir stjórn Hákonar Leifssonar flytja tónleika í Nýheimum. Kórinn býður Hornfirðingum að koma að hlýða á söng sinn í endurgjaldslaust. Þess má geta að Hákon var organisti í Hafnarkirkju í fjögur ár fyrir nokkrum árum. Kórinn mun flytja Hornfirðingum alíslenska dagskrá sem hann hefur verið að taka upp á geislaplötu að undanförnu. Þar eru aðallega lög sem skrifuð hafa verið á undanförnum fjörutíu árum, en flest þessara laga hafa þegar öðlast fastan sess í huga áhugamanna um kórsöng. Ber þar að nefna Maríu lög Atla Heimis Sveinssonar, þjóðalaga útsetningar á íslenskum lögum eftir Victor Urbancick og Hallgrím Helgason. Þá eru þarna líka tvö lög eftir Jón Ásgeirsson, vikivakakvæðið Pilturinn og stúlkan og Hjá lygnri móðu sem flestir kórar þekkja. Þá mun kórinn flytja Eg vill ofa eina þá, Maríulag Báru Grímsdóttur sem hefur flogið fjöllum hærra sem slagari í kórum á Íslandi og einnig erlendis. Að síðustu ber að geta laga eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson samdi við ljóð eftir Jónas Hallgrímsson, en Hróðmar mun eiga nærliggjandi ættir að rekja til Austur Skaftafellssýslu og að síðustu lag eftir Pál P. Pálsson.
Háskóla kórinn kemur við á Hornafirði á ferðalagi sínu um landið sem farið er í tilefni þess að meðlimir kórsins hafa nýlokið vorprófum. Þeim þykir ástæða til að gera sér glaðan dag með því að fara með söng um héruð landsins.



