Hljómsveitin Barducha gestir Kvennakórsins í kvöld
Í kvöld heldur Kvennakór Hornafjarðar sína árlegu Vortónleika og fara þeir fram í Hafnarkirkju. Sérstakir gestir kórsins er hljómsveitin Barducha sem kemur af stór Reykjavíkursvæðinu. Hana skipa úrvals tónlistarmenn, sem eru Birgir Bragason á Kontrabassa, Hjörleifur Valsson á Fiðlu, Steingrímur Guðmundsson á Slagverk og Tatu Kamtomaa á Harmoníku. Þeir munu spila sína frábæru tónlist í upphafi tónleika og í hléi. Tónlist þeirra flokkast undir Balzamer tónlist sem er samblanda af, austur evrópskri, arabískri, sígauna og klezmer tónlist. Stjórnandi Kvennakórsins er Sigjón Bjarnason. Á efnisskránni er fjölbreytt úrval sönglaga bæði íslensk og erlend. Undirleikari kórsins er Jónína Einarsdóttir.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:00. Boðið verður upp á kaffi og konfekt í hléi. Aðgangseyrir er kr. 1000.-



