Menning
Skagfirska söngsveitin í Reykjavík
Skagfirska söngsveitin í Reykjavík
Skagfirska söngsveitin í Reykjavík

04.05.2005

Skagfirska söngsveitin með tónleika í Nýheimum

Laugardaginn 7. maí n.k. heldur Skagfirska söngsveitin í Reykjavík tónleika í Nýheimum. Stjórnandi er Björgvin Þ. Valdimarsson. Söngsveitin mun flytja þjóðlög frá Noregi, Svíþjóð og Ungverjalandi, amerískan gospel-sálm og að sjálfsögðu íslensk lög af ýmsu tagi, ný og gömul. Má þar nefna Nótt eftir Árna Thorsteinson, Í fögrum dal eftir Emil Thoroddsen, Skagafjörð eftir Sigurð Helgason, Ljósar nætur eftir Loft S. Loftsson og Höfðingja smiðjunnar eftir Björgvin Þ. Valdimarsson. Einsöng syngja Harpa Hallgrímsdóttir messó sópran, Ragna Bjarnadóttir sópran, Baldvin Júlíusson bassi og, Sigurður Skagfjörð Steingrímsson barítón. Undirleik annast Dagný Björgvinsdóttir.

Skagfirska söngsveitin var stofnuð 1970. Að stofnuninni stóðu félagar úr Skagfirðingafélaginu í Reykjavík Á fundinum var samþykkt að stofna blandaðan kór og skyldi hann heita Skagfirska söngsveitin í Reykjavík. Fyrstu tónleikarnir fóru fram á árshátíð Skagfirðingafélagsins á Hótel Sögu ári seinna. Allt frá fyrsta starfsári hefur starfsemin verið með miklum blóma og hafa tónleikarnir orðið fleiri en starfsárin. Stjórnendur kórsins haft alltaf haft mikinn metnað og gert miklar kröfur, jafnt til söngfólksins sem þeirra verka sem Skagfirska söngsveitin hefur flutt. Fyrsta söngferðin á erlenda grundu var farin til Skotlands 1979 og var gerður góður rómur að söng söngsveitarinnar. Haustið 1983 tók Björgvin Þ. Valdimarsson við söngstjórn Skagfirsku söngsveitarinnar. Undir stjórn Björgvins hefur Skagfirska söngsveitin haldið áfram að vaxa og dafna og er nú orðin einn af bestu blönduðu kórum landsins. Tónleikarnir hefjast kl. 17 og er aðgangseyrir kr. 1000

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica