Menning

Helga Bryndís Magnúsdóttir

Tónleikar í Nýheimum sunnudag - 20.05.2005 Menning

Sunnudaginn 22. maí kl. 16:00 verða tónleikar í Nýheimum. Þeir eru samstarfstónleikar Félags íslenskra tónlistarmanna (FÍT), Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu og Listvinasjóðs Hornafjarðar. Á tónleikunum mun Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanóleikari flytja verk eftir Schumann og Chopin. Tveir nemendur Tónskólans munu einnig koma fram á tónleikunum, þær Þórhildur Rán Torfadóttir sem leikur á flautu og Hrefna Rún Kristinsdóttir sem leikur á tenórsaxafón. Helga Bryndís Magnúsdóttir hóf tónlistarnám í Vestmannaeyjum hjá Guðmundi H. Guðjónssyni. Hún fór síðan í Tónlistarskólann í Reykjavík og naut þar handleiðslu Jónasar Ingimundarsonar og útskrifaðist árið 1987 sem píanókennari og einleikari. Hún stundaði framhaldsnám í Vínarborg og Helsinki. Lesa meira
 
Háskólakórinn

Háskólakórinn með tónleika í Nýheimum - 17.05.2005 Menning

Í kvöld, miðvikudaginn 18. maí kl. 20:00 mun Háskólakórinn undir stjórn Hákonar Leifssonar flytja tónleika í Nýheimum. Kórinn býður Hornfirðingum að koma að hlýða á söng sinn í endurgjaldslaust. Þess má geta að Hákon var organisti í Hafnarkirkju í fjögur ár fyrir nokkrum árum. Kórinn mun flytja Hornfirðingum alíslenska dagskrá sem hann hefur verið að taka upp á geislaplötu að undanförnu. Þar eru aðallega lög sem skrifuð hafa verið á undanförnum fjörutíu árum, en flest þessara laga hafa þegar öðlast fastan sess í huga áhugamanna um kórsöng. Ber þar að nefna Maríu lög Atla Heimis Sveinssonar, þjóðalaga útsetningar á íslenskum lögum eftir Victor Urbancick og Hallgrím Helgason. Þá eru þarna líka tvö lög eftir Jón Ásgeirsson, vikivakakvæðið Pilturinn og stúlkan og Hjá lygnri móðu sem flestir kórar þekkja. Þá mun kórinn flytja Eg vill ofa eina þá, Maríulag Báru Grímsdóttur sem hefur flogið fjöllum hærra sem slagari í kórum á Íslandi og einnig erlendis. Að síðustu ber að geta laga eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson samdi við ljóð eftir Jónas Hallgrímsson, en Hróðmar mun eiga nærliggjandi ættir að rekja til Austur Skaftafellssýslu og að síðustu lag eftir Pál P. Pálsson. Lesa meira
 
Kvennakórinn

Hljómsveitin Barducha gestir Kvennakórsins í kvöld - 10.05.2005 Kvennakór Hornafjarðar

Í kvöld heldur Kvennakór Hornafjarðar sína árlegu Vortónleika og fara þeir fram í Hafnarkirkju. Sérstakir gestir kórsins er hljómsveitin Barducha sem kemur af stór Reykjavíkursvæðinu. Hana skipa úrvals tónlistarmenn, sem eru Birgir Bragason á Kontrabassa, Hjörleifur Valsson á Fiðlu, Steingrímur Guðmundsson á Slagverk og Tatu Kamtomaa á Harmoníku. Þeir munu spila sína frábæru tónlist í upphafi tónleika og í hléi. Tónlist þeirra flokkast undir Balzamer tónlist sem er samblanda af, austur evrópskri, arabískri, sígauna og klezmer tónlist. Stjórnandi Kvennakórsins er Sigjón Bjarnason. Á efnisskránni er fjölbreytt úrval sönglaga bæði íslensk og erlend. Undirleikari kórsins er Jónína Einarsdóttir. Lesa meira
 
Skagfirska söngsveitin í Reykjavík

Skagfirska söngsveitin með tónleika í Nýheimum - 04.05.2005 Menning

Laugardagskvöldið 7. maí n.k. heldur Skagfirska söngsveitin í Reykjavík tónleika í Nýheimum. Stjórnandi er Björgvin Þ. Valdimarsson. Söngsveitin mun flytja þjóðlög frá Noregi, Svíþjóð og Ungverjalandi, amerískan gospel-sálm og að sjálfsögðu íslensk lög af ýmsu tagi, ný og gömul. Má þar nefna Nótt eftir Árna Thorsteinson, Í fögrum dal eftir Emil Thoroddsen, Skagafjörð eftir Sigurð Helgason, Ljósar nætur eftir Loft S. Loftsson og Höfðingja smiðjunnar eftir Björgvin Þ. Valdimarsson. Einsöng syngja Harpa Hallgrímsdóttir messó sópran, Ragna Bjarnadóttir sópran, Baldvin Júlíusson bassi og, Sigurður Skagfjörð Steingrímsson barítón. Undirleik annast Dagný Björgvinsdóttir. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica