Undirritun samstarfsamnings milli Menningarmiðstöðvar og FAS
Laugardaginn 16. apríl var undirritaður samstarfssamningur á milli Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu (FAS). Skólinn og sveitarfélagið ætla á næstu tveimur árum að efla menningarstarf og afþreyingu ungs fólks á aldrinum 16-25 ára í skólanum og sveitarfélaginu öllu. Leitað verður eftir samstarfi við alla sem koma að æskulýðs-, tómstunda og menningarmálum í héraðinu. Menningarmiðstöð Hornafjarðar mun sinna þessu verkefni í samráði við ungt fólk á svæðinu og nemendur í FAS.
Lögð verður áhersla á að styðja við frumkvæði og drifkraft unga fólksins með því að aðstoða það við skipulagningu og fjármögnun einstakra viðburða og verkefna.
Sjá Samning (pdf)


