Menning
Kammersveit Reykjavíkur
Kammersveit Reykjavíkur
Kammersveit Reykjavíkur

05.04.2005

Kammersveit Reykjavíkur í Nýheimum

Sunnudaginn 10. apríl 2005 kl. 17.00 gefst einstakt tækifæri til að hlýða á tvö meistaraverk í flutningi Kammersveitar Reykjavíkur, í Nýheimum á Höfn í Hornafirði. Kammersveit Reykjavíkur var stofnuð árið 1974 af Rut Ingólfsdóttur ásamt 12 hljóðfæraleikurum, sem flestir voru nýkomnir heim frá námi erlendis og störfuðu í Sinfóníuhljómsveit Íslands og við Tónlistarskólann í Reykjavík. Markmiðið með stofnun hennar var að gefa áheyrendum kost á reglulegum tónleikum með kammertónlist, allt frá barokktímanum til nútímans, og um leið að gefa hljóðfæraleikurunum tækifæri til að glíma við áhugaverð verkefni. Meðlimir Kammersveitarinnar eru virkir þátttakendur í tónlistarlífi Íslendinga enda meðlimir í Sinfóníuhljómsveit Íslands og ýmsum öðrum hljómsveitum auk þess að stunda tónlistarkennslu. Kammersveitin er kunn fyrir fjölbreytt verkefnaval og góðan flutning. Hún hefur frumflutt fjölda íslenskra og erlendra verka sem samin hafa verið fyrir hana og ennfremur staðið fyrir íslenskum frumflutningi þekkra erlendra verka.

Kammersveitin hefur fengið ýmsa þekkta stjórnendur til liðs við sig. Einkum hefur hún unnið náið með Paul Zukofsky, Reinhard Goebel, Jaap Schröder og Vladimir Ashkenazy píanóleikara og stjórnanda. Starfsemi Kammersveitar Reykjavíkur rúmar jafnt tónleikahald innanlands sem utan og einnig upptökur fyrir útvarp og sjónvarp. Hún kemur reglulega fram á Listahátíð í Reykjavík og hefur leikið á fjölmörgum tónlistarhátíðum erlendis. Kammersveit Reykjavíkur hefur komið fram fyrir Íslands hönd við fjölmörg tækifæri erlendis, t.d. á heimssýningunum í Lissabon 1998 og í Hannover árið 2000, sem og við opnun sendiráðs Íslands í Tokyo. Í maí 2003 fór Kammersveitin í tónleikaferð til Belgíu og Rússlands í boði Vladimirs Ashkenazys, þar sem hann kom fram bæði sem einleikari og stjórnandi. Í október 2004 flutti Kammersveitin efnisskrá með íslenskum verkum á Íslenskum menningardögum í París.

Kammersveitin hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2003 fyrir geisladiska sína með Brandenborgarkonsertum Johanns Sebastians Bachs, þar sem Jaap Schröder leiddi hljómsveitina. Á undanförnum árum hefur Kammersveit Reykjavíkur lagt áherslu á upptöku og útgáfu þeirra fjölmörgu tónverka sem íslensk tónskáld hafa samið sérstaklega fyrir hana. Þegar eru komnir út fjórir diskar í röð hljómdiska sem ætlunin er að endurspegli þá listrænu samvinnu sem Kammersveitin hefur átt við helstu listamenn landsins í gegnum tíðina.

Á efnisskrá tónleikana í Nýheimum eru Strengjakvintett Schuberts í C-dúr op. 163 sem oft er nefndur drottning kammerverkanna vegna þess hve fallegur hann er og Píanótrío eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson, sem að öllum líkindum eru fyrstu tríóin sem Íslendingur skrifaði. Umsagnir um leik sveitarinnar á strengjakvartettinum eru m.a.?kaflana með sinni manísku lífshyllingu, spennu og óvissu er vart hægt að spila betur" og ?leikur fimmmenninganna úr Kammersveitinni var sópandi glæsilegur.?
Kammersveit Reykjavíkur kemur fram í misstórum hópum, allt frá 3 til 35 manns, en stærð hópsins ræðst af þörfum tónverkanna hverju sinni.

Kammersveitina skipa á þessum tónleikum:
Rut Ingólfsdóttir, fiðla
Sigurlaug Eðvaldsdóttir, fiðla
Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla
Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló
Hrafnkell Orri Egilsson, selló
Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó

Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, Listvinasjóðs Hornafjarðar og Kammersveitar Reykjavíkur. Miðaverð er 1000 krónur.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica