Menning

Vorhátíð FAS

Undirritun samstarfsamnings milli Menningarmiðstöðvar og FAS - 18.04.2005 Menning

Laugardaginn 16. apríl var undirritaður samstarfsamningur á milli Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu (FAS). Skólinn og sveitarfélagið ætla á næstu tveimur árum að efla menningarstarf og afþreyingu ungs fólks á aldrinum 16-25 ára í skólanum og sveitarfélaginu öllu. Leitað verður eftir samstarfi við alla sem koma að æskulýðs-, tómstunda og menningarmálum í héraðinu. Menningarmiðstöð Hornafjarðar mun sinna þessu verkefni í samráði við ungt fólk á svæðinu og nemendur í FAS. Lesa meira
 
Superstar

Frumsýning á Súperstar - 13.04.2005 Menning

Laugardaginn 16. apríl nk. frumsýnir Leikfélag Hornafjarðar í samvinnu við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu og Tónskóla Austur Skaftafellssýslu söngleikinn “Súperstar” Eins og allir vita er söngleikurinn byggður á söngleik Webbers og Rise “Jesus Christ Superstar” 21 leikari og söngvari taka þátt í sýningunni og er sá hópur blanda af ungum nýliðum og eldri reynsluboltum. Allir leikarar sýningarinnar eru nemendur í FAS. Þess má til gamans geta að í kórnum eru foreldrar leikara, kennarar leikaranna og aðrir. Æfingar hófust um miðjan febrúar og hefur verið æft af fullum krafti síðan. Sýnt er í Mánagarði, en nokkuð miklar breytingar hafa verið gerðar þar svo að hann henti betur undir sviðslistir. Lesa meira
 
Kammersveit Reykjavíkur

Kammersveit Reykjavíkur í Nýheimum - 05.04.2005 Menning

Sunnudaginn 10. apríl 2005 kl. 17.00 gefst einstakt tækifæri til að hlýða á tvö meistaraverk í flutningi Kammersveitar Reykjavíkur, í Nýheimum á Höfn í Hornafirði. Kammersveit Reykjavíkur var stofnuð árið 1974 af Rut Ingólfsdóttur ásamt 12 hljóðfæraleikurum, sem flestir voru nýkomnir heim frá námi erlendis og störfuðu í Sinfóníuhljómsveit Íslands og við Tónlistarskólann í Reykjavík. Markmiðið með stofnun hennar var að gefa áheyrendum kost á reglulegum tónleikum með kammertónlist, allt frá barokktímanum til nútímans, og um leið að gefa hljóðfæraleikurunum tækifæri til að glíma við áhugaverð verkefni. Meðlimir Kammersveitarinnar eru virkir þátttakendur í tónlistarlífi Íslendinga enda meðlimir í Sinfóníuhljómsveit Íslands og ýmsum öðrum hljómsveitum auk þess að stunda tónlistarkennslu. Kammersveitin er kunn fyrir fjölbreytt verkefnaval og góðan flutning. Hún hefur frumflutt fjölda íslenskra og erlendra verka sem samin hafa verið fyrir hana og ennfremur staðið fyrir íslenskum frumflutningi þekkra erlendra verka. Lesa meira
 

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica