Menning
Á safnadögum
Á safnadögum
Á safnadögum
Mynd 2 af 5
1 2 3 4 5

24.03.2005

Margt merkilegt að skoða á safnadögum yfir páskana

Safnadagar verða í Menningarmiðstöð Hornafjarðar yfir páskana og verða söfnin opnuð í dag kl 14 .00. Söfnin verða opin alla dagana frá kl.14 til 18. Í Gömlubúð verður mikið um að vera, þar verða margir fágætir og merkilegir gripir sem eru í einkaeign sýndir. Leitað hefur verið til safnara á svæðinu um að sýna söfn sín í Gömlu búð og hafa margir orðið við þeim tilmælum og verða þar t.d. skeiðasafn, mynt- og seðlasafn, frímerkja-og kveikjarasafn, fuglar, könnur, pennasöfn o.m.fl. Þá má minna á stórt og merkilegt fugla og eggjasafn í Gömlubúð og tilvalið að sýna börnunum það nú þegar vorið fer að nálgast og farfuglarnir að koma.

Björn Arnarson safnvörður segist vonast til að sem flestir gefi sér tíma til að koma og eiga ánægjulega stund í Gömlubúð, taka börnin og barnabörnin með og lofa þeim að fá smá innsýn í gamla tímann og skoða bæði dót og áhöld sem notuð voru í ,, gamla daga??.
Aðgangur að söfnunum er ókeypis.

Senda grein

 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica